vernd og orkunýting landsvæða.
Herra forseti. Ég er sammála hv. þingmanni um að þarna höfðu ráðherrarnir kjörið tækifæri til að sýna fram á, eins og varðandi Hólmsárvirkjun sem við ræddum nokkuð ítarlega í gær, að fagleg rök byggju að baki umsagnarferlinu, hefðu þeir tekið tillit til þeirra raka sem fram komu um Hagavatnsvirkjun. Hv. þingmaður vitnaði til orkuskrifstofu iðnaðarráðuneytisins en það er fylgiskjal með umsögn minni frá atvinnuveganefnd til umhverfis- og samgöngunefndar. Þar stendur, með leyfi forseta:
„Af framangreindum virkjunarkostum má telja að mest rök séu fyrir því að færa Hagavatnsvirkjun úr biðflokk í orkunýtingarflokk. Í öðru sæti kemur síðan Hólmsárvirkjun neðri við Atley.“
Það er augljóst að ráðherrarnir höfðu ekki einasta aðgang að jákvæðum umsögnum um Hagavatnsvirkjun heldur var einnig sérstakt plagg, minnisblað, úr ráðuneyti annars ráðherrans lagt fyrir ráðherrana þar sem sagt var að sérstaklega góð rök væru fyrir því að færa einmitt þennan virkjunarkost yfir í nýtingarflokk.
Það hefur verið furðuleg umræða um náttúruvernd og sandfokið. Meðal annars var einstaklega furðuleg frétt á RÚV þar sem talað var við Ólaf Arnalds prófessor sem sagði að virkjun myndi mögulega, kannski, ef til vill, valda því að fokið yrði ekki minna. Þetta átti að valda því að virkjunarkosturinn væri í uppnámi. Fréttin stóðst auðvitað enga skoðun þegar hún var lesin í gegn. En af því að þeir Sveinn Runólfsson og Ólafur Arnalds komu fyrir nefndina vil ég spyrja hv. þingmann hvort hann sé sammála því sem ég ræði í umsögn minni að stífla eða virkjun mundi halda vatnsyfirborði Hagavatns stöðugu og mundi án efa minnka uppblástur frá Hagavatnssvæðinu (Forseti hringir.) og það kæmi ekki í veg fyrir þær rannsóknir sem nauðsynlegar eru í framhaldinu. Hugsanlega gæti orðið auðveldara að fá fjármagn í slíkar rannsóknir.