vernd og orkunýting landsvæða.
Virðulegi forseti. Það skal tekið fram í upphafi að við framsóknarmenn fórum af stað með vinnu að þessari rammaáætlun fyrir tæpum 14 árum akkúrat með það markmið að færa virkjana- og orkumál upp úr pólitískum skotgröfum og upp á faglegt plan.
Þegar við þingmenn Framsóknarflokksins stöndum svo hér í þinginu og sjáum í hvaða pólitísku skotgrafir málið er farið hjá ríkisstjórninni þá verð ég að lýsa yfir vonbrigðum. Tillögur framsóknarmanna og sjálfstæðismanna eru eðlislíkar vegna þess að við leggjum til mildari leið heldur en sjálfstæðismenn. Við leggjum til að ríkisstjórnin taki málið til sín aftur og endurveki og endurræsi þá faglegu vinnu sem (Gripið fram í.) liggur til grundvallar vinnu sérfræðinganna, frekar en þær svakalega pólitísku breytingartillögur ríkisstjórnarinnar sem birtast í þessu plaggi. Hv. þm. Pétur Blöndal kallar fram í og segir: Hver treystir ríkisstjórninni? Er ekki alltaf von á einum? Leið framsóknarmanna er mildari leið, en hins vegar er tillagan efnislega mjög áþekk tillögum sjálfstæðismanna, nema þeir vilja ganga alla leiðina og breyta lögunum og færa þetta á það plan. Það má vel vera að sú sem hér stendur komi til með að samþykkja þá tillögu þegar upp er staðið því það virðist vera að þingmenn telji sig ekki bundna pólitískt af þessari þingsályktunartillögu ef hún fer í gegn á minnsta lægsta samnefnara meiri hlutans. En svona eru málin afgreidd í þinginu hjá þessari ríkisstjórn, allt gert til að halda pólitísku lífi í dauðri ríkisstjórn í stað þess að hugsa um þjóðarhag, koma hagvexti af stað, (Forseti hringir.) atvinnulífi, útrýma atvinnuleysi og fara að hjálpa heimilunum.