vernd og orkunýting landsvæða.
Herra forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni um nauðsyn þess að hv. þingmanni verði úthlutaður rýmri ræðutími vegna þess að þekking hv. þingmanns á málaflokknum er mjög mikil eins og við heyrum hér. Mér finnst mjög mikilvægt að við fáum svör við þeim spurningum sem hv. þm. Unnur Brá Konráðsdóttir beindi til ríkisstjórnarinnar og stjórnarmeirihlutans. Það er einfaldlega ekki boðlegt þegar sumir þingmenn koma með málefnalegt innlegg og mikilvægar spurningar að aðrir sitji hjá og svari þeim ekki. Reyndar er það svo, svo maður gæti allrar sanngirni, að hv. þm. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir hefur líka beðið um andsvar þannig að það verður fróðlegt að heyra svör hennar við þeim spurningum sem fram hafa komið hér.
Mig langaði að spyrja hv. þingmann, sem er þingmaður Suðurkjördæmis, um þær breytingar sem gerðar voru á síðustu metrum á milli ráðherra í ríkisstjórninni þar sem sex virkjunarkostir voru færðir úr nýtingarflokki yfir í biðflokk. Það hefur gríðarlega mikil áhrif á atvinnulíf á Suðurlandi og í Suðurkjördæmi.
Búið er að vinna heilmikið að þessum málum. Mig langar til að spyrja hv. þingmann: Ef við tökum Þjórsána sem dæmi, en þar er búið að hanna flestöll mannvirki, það er alla vega mjög langt komið, og búið er að rannsaka þessa virkjunarkosti mjög vel á undangengnum árum, hvað finnst hv. þingmanni skorta á er snertir rannsóknir á neðri hluta Þjórsár? Málið er að ef þessir virkjunarkostir væru í nýtingarflokki væri hægt með tiltölulega skömmum fyrirvara að ráðast í mjög umfangsmiklar framkvæmdir þar. Þessir virkjunarkostir eru í byggð. Um er að ræða rennslisvirkjanir sem leitt hefðu getað af sér þúsundir starfa, m.a. í kjördæmi hv. þingmanns.
Þess vegna spyr ég hv. þingmann hvað hún telji að gera þurfi til að rannsaka svæðið eitthvað meira, eða þarf kannski ekkert að rannsaka það meira?