141. löggjafarþing — 51. fundur,  12. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[18:20]
Horfa

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (Vg) (andsvar):

Forseti. Ég held að ég skilji ekki enn alveg hv. þingmann. Við getum komið að því síðar. Það samráðsferli sem hefur verið fylgt er í samræmi við lögin sem Alþingi sjálft setti en kannski erum við að farast á mis í þessum efnum og getum skýrt það betur síðar.

Mig langaði að nefna annan mikilvægan punkt sem hv. þingmaður kom inn á þegar hún ræddi sérstaklega um 13. kaflann í nefndaráliti meiri hlutans. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni, sem setur sig vel inn í mál, að þar koma fram ýmsar ábendingar og athugasemdir um hvað þurfi að gera áfram í ferlinu.

Hv. þingmaður spurði: Er það þannig að meiri hlutinn telur ekki allar rannsóknir fullnægjandi o.s.frv.? Ég vil svara því um leið og ég spyr hv. þingmann líka spurningar: Já, að sjálfsögðu er það þannig enda hefur það skýrt komið fram og verið endurtekið í máli fulltrúa sem sátu í faghópunum, í máli formanna faghópa og í máli fulltrúa verkefnisstjórnar. Það vantaði heilmikil grunngögn sem varða aðferðafræði, eins og hv. þingmaður hefur sjálf bent á, sem varð að þróa og á enn eftir að þróa miklu betur vegna þess að, eins og segir í ýmsum umsögnum frá bæði náttúruverndarsamtökum og fleirum, við erum að feta fyrstu skrefin við að meta land út frá ólíkum sjónarhornum þegar orkugeirinn hefur aftur á móti haft ár og áratugi við að byggja upp sínar rannsóknir. Þá kemur einmitt að þessu: Er ekki rétt, getur ekki hv. þingmaður staðfest það sem fulltrúi í verkefnisstjórninni að upphaflega hafi fulltrúar í verkefnisstjórn búist við (Forseti hringir.) stórum biðflokki vegna þess einmitt að það (Forseti hringir.) blasti við að ýmis gögn vantaði?