störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég kveð mér hljóðs undir þessum lið til að tala um þau vinnubrögð sem virðast vera viðhöfð hjá Dróma hf. og snúa að skuldavanda heimilanna og úrlausn þeirra mála sem þar eru til meðferðar. Okkur hv. þingmönnum hafa borist margir póstar og bréf þar sem fólk lýsir samskiptum sínum við þessa fjármálastofnun. Okkur barst bréf frá Ágústu Hauksdóttur fasteignasala þar sem hún lýsir því að hún hafi miklar áhyggjur af þessu og hafi efasemdir um úrlausn málanna sem þarna eru inni. Hún hefur líka áhyggjur af því og bendir á að mikill aðstöðumunur sé á milli einstaklinganna og þessa fyrirtækis. Fram kemur í bréfi Ágústu að hún hafi setið fund með umboðsmanni skuldara með mörgum fasteignasölum sem tekið hafa undir ábendingar hennar og áhyggjur. Í bréfinu kemur líka fram að skrifað hafi verið bréf fyrir ári síðan til lögmanns sem ekki hefur enn svarað því.
Í Morgunblaðinu í dag er frétt þar sem haldið er áfram að ræða þessi mál og talað við ákveðna einstaklinga sem lýsa þeim á svipaðan hátt. Ég verð að segja að ég hef orðið miklar áhyggjur af þessum málum. Vitnað er til Sigurðar Hreins Sigurðssonar sem útskýrir hvers menn gera athugasemdir við afgreiðslu hjá Dróma hf., m.a. vegna þeirrar auglýsingaherferðar sem fyrirtækið hefur farið í. Fólki virðist vera algerlega ofboðið.
Fram kom í óundirbúnum fyrirspurnum fyrir ekki svo löngu að hæstv. forsætisráðherra ætlaði að fara að gera eitthvað í málinu. En það gerist samt ekki neitt. Það eina sem ríkisstjórnin virðist gera er að auka álögurnar á heimilin (Gripið fram í: Nei.) en þegar kemur að því að hlúa að heimilunum og veita það skjól og þá vernd sem þau þurfa þá gerist ekki neitt. (Gripið fram í.) Verið er að skoða það en það gerist samt ekki neitt. Ég hvet hæstv. ríkisstjórn og forsvarsmenn hennar að gera í málinu því að þær ábendingar sem við, hv. þingmenn, höfum fengið gefa tilefni til þess.