141. löggjafarþing — 52. fundur,  13. des. 2012.

störf þingsins.

[10:46]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr):

Forseti. Mig langar að grípa boltann hér á lofti frá þingmanninum Ásbirni Óttarssyni sem fjallaði um málefni skuldsettra heimila og þá viðurkenningu Fjármálaeftirlitsins að allt væri með felldu hjá Dróma. Ég held að öllum sé ljóst sem sjá þann póst sem þingmenn fá að svo er ekki. Ég held að Fjármálaeftirlitið sinni ekki nógu vel neytendavernd. Fólk kvartar ekki þangað vegna þess að það fær enga úrlausn mála þar. Þess í stað fá þingmenn og umboðsmaður skuldara kvartanir.

Því miður held ég að staðan sé ekkert mikið betri hjá öðrum fjármálafyrirtækjum. Lántakandinn er alltaf peð sem má sín lítils.

Nýlega tilkynnti velferðarráðherra hugmyndir um að fólk gæti keypt sér þak á verðtrygginguna. Ég vil nota tækifærið og vara við þeim hugmyndum ef það verður ofan á að auka misskiptingu og kostnað lántakenda við lántöku.

Mig langar einnig að benda á, fyrst ég er að tala um þennan málaflokk, að umboðsmaður skuldara bannar fólki sem er í greiðsluskjóli að fara til útlanda. Hvaða heimildir hefur hann til þess? Þetta finnst mér að við þurfum að skoða. Ég held að við þurfum að fara að haga okkur eins og menn. Við þurfum að virða mannréttindi skuldara og hætta að líta á rétt lánveitenda sem heilagan. Við verðum að dreifa áhættunni af krónuhagkerfi okkar þarna á milli með sanngjörnum hætti og við verðum að taka á rót vandans.