störf þingsins.
Frú forseti. Mér er öfugt farið en þeim hv. þingmanni sem hér talaði síðastur. Ég vil lýsa yfir ánægju með það að sjá í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar áætlun um næstu skref í þá átt að við byggjum og reisum nýjan Landspítala, næstu skref að því mikilvæga markmiði. Það er fagnaðarefni.
Ég rifja upp að á bls. 58 í greinargerð með frumvarpi til fjárlaga kemur fram að unnið sé að áætlun um byggingu nýs Landspítala, með leyfi forseta, „en samkvæmt drögum að henni er gert ráð fyrir að framkvæmdakostnaður verði um 45 milljarðar kr. og um 2.100 ársverk. Gert er ráð fyrir að áætlunin og áfangaskipting framkvæmdarinnar verði lokið fyrir afgreiðslu frumvarpsins“. Þetta er það sem var lagt fyrir þingið 11. september sl. við upphaf þings og ég er ein af þeim sem hafa beðið spenntir eftir því að sjá efndirnar á þeim orðum sem standa í þessari greinargerð.
Í ríkisstjórn 30. nóvember, sem kemur líka fram í nefndarálitinu, var lagt fram minnisblað um breytingar á þeim áætlunum sem hv. þm. Ásbjörn Óttarsson nefndi hér áðan í þá veru að í stað þess að fara leiguleiðina með þessa miklu framkvæmd yrði hún gerð að opinberri framkvæmd. Þetta er engin kúvending sem er að koma fram núna í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar. Þetta var á öllum fréttasíðum og fréttatilkynningu frá ríkisstjórn 30. nóvember sl. Fram kemur að fyrir lok janúar verði lagt fram frumvarp til breytinga á lögum nr. 64/2010, sem hv. þm. Kristján Þór Júlíusson nefndi áðan. Ég vil meina að það sé ekkert brot á samkomulagi að leggja fram frumvarp til breytinga á þessum lögum. (Forseti hringir.) Það hefur sýnt sig að betra er að fara með þetta verk í opinbera framkvæmd en leiguleiðina (Forseti hringir.) og við tökum þá umræðu þegar frumvarpið kemur hingað inn í janúar.