vernd og orkunýting landsvæða.
Frú forseti. Ég náði ekki í fyrri ræðu minni að ljúka umfjöllun um þetta veigamikla mál, sem er áætlun um það hvernig við ætlum að vernda og nýta náttúruauðlindir, orkuauðlindir þjóðarinnar á komandi árum, og þess vegna er ég kominn í mína aðra ræðu um það.
Eftir því sem við ræðum þessi mál betur í þinginu efast ég æ meir um það verklag sem ríkisstjórnin hefur viðhaft í málinu, þ.e. að færa sex virkjunarkosti úr nýtingarflokki í biðflokk. Þetta eru m.a. rennslisvirkjanir í Þjórsá, en þau mannvirki eru nú þegar hönnuð, sem eru í byggð, við erum ekki að tala um ósnortin víðerni heldur um virkjunarkosti sem eru við bújarðir og vegi og fleira.
Með því að færa þessa virkjunarkosti, og ég vil sérstaklega tiltaka Þjórsá í því samhengi, er verið að auka þrýsting orkufyrirtækja á framkvæmdir í jarðhita, m.a. á Reykjanesi. Það hefur komið fram í umræðunni hjá mörgum þingmönnum að menn telji að æskilegt væri að fara jafnvel varlega fram í virkjun háhitasvæða, þó að að sjálfsögðu sé ég ekki að tala fyrir því að þau eigi algjörlega að friða. Nærtækara sé að fara í aðra virkjunarkosti eins og í Þjórsá sem eru vandlega rannsakaðir og búið að hanna flestöll mannvirki sem tengjast þeim framkvæmdum. Með því að fara ekki eftir áliti sérfræðingahópsins sem mælti fyrir um hvernig fara skyldi með þá sex virkjunarkosti sem ráðherrar Vinstri grænna hafa fært úr nýtingarflokki í verndarflokk, með því að fara ekki eftir faglegum niðurstöðum þeirra sem stóðu að rammaáætluninni og allra þeirra verkefnahópa sem hafa á undangengnum 13 árum unnið að þessu verkefni eykur ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar þrýstinginn og áhersluna á að jarðhitasvæðin verði virkjuð frekar en rennslisvirkjanir. Mér finnst það nokkuð öfugsnúið hjá umhverfisverndarflokki eins og Vinstri hreyfingunni – grænu framboði að setja málin þannig fram.
Síðan er náttúrlega grátlegt að verða vitni að því að slíkt grundvallarplagg sem rammaáætlunin er skuli verða að pólitískri skiptimynt á milli stjórnarflokkanna. Krafa Vinstri grænna um að taka þessa sex virkjunarkosti frá var mjög skýr og trúlega hefur líf ríkisstjórnarinnar legið undir í þeim hótunum. Það er mjög miður að horfa á allt það mikla starf sem búið er að vinna á sl. 13 árum lenda í slíku öngstræti og að pólitísk fingraför Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs skuli vera á þessari rammaáætlun.
Við verðum nefnilega að hugsa fram í tímann þegar kemur að vernd og nýtingu á náttúru- og orkuauðlindum þjóðarinnar. Mér segir svo hugur, eftir ágæta umræðu og málefnaleg innlegg margra þingmanna, að þessi þingsályktun verði ekki langlíf. Ég á von á því að í kjölfar næstu alþingiskosninga verði þessi áætlun tekin upp af öðrum flokkum sem þá koma væntanlega að ríkisstjórnarborðinu. Ég bind þá vonir mínar við og það væri minn vilji að menn færu eftir því sem helstu sérfræðingar þjóðarinnar í þessum málum hafa lagt til. Enda var það markmiðið í upphafi þegar ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks setti vinnu við rammaáætlunina af stað. Þar átti að fá helstu sérfræðinga þjóðarinnar í þessum málum að borðinu til að vinna að framtíðarstefnumörkun um nýtingu og verndun orkuauðlinda.
Svo núna þegar þetta 13 ára starf liggur fyrir taka tveir ráðherrar í ríkisstjórninni sig til og breyta þeirri faglegu vinnu sem hefur átt sér stað. Við þingmenn Framsóknarflokksins höfum komið hér upp og kallað eftir sáttum í þessu máli og sú sátt byggist á því að fara eftir tillögum helstu sérfræðing um rammaáætlun.
Síðan er það kapítuli út af fyrir sig, ef ég geri hlé á því að ræða um faglega ferlið sem hefur átt sér stað í þessum málaflokki, hvað það þýðir efnahagslega fyrir þjóðarbúið að taka þessa sex virkjunarkosti úr nýtingarflokki og setja þá í biðflokk. Ráðgjafarfyrirtækið Gamma hefur komið fram með þær tölur að þetta muni mögulega leiða til þess að fjárfesting á fjögurra ára tímabili á árunum 2013–2016 verði 270 milljörðum kr. lægri en ella hefði orðið. Við erum nýlega búin að fara í gegnum 2. umr. fjárlaga þar sem mönnum varð tíðrætt um skort á fjárfestingu í samfélaginu, hversu tilfinnanlega litlar tekjur ríkissjóðs og sveitarfélaga eru, og á sama tíma ræðum við um mál sem mun mögulega leiða til þess að fjárfestingar í orkutengdum iðnaði, þ.e. uppbyggingu þessara virkjana, verði 270 milljörðum kr. lægri en ella.
Þetta eru engar smáræðis fjárhæðir. Slík fjárfesting hefði skilað ríkissjóði tugum milljarða kr. í auknar tekjur, sveitarfélögum í landinu líka, og við skulum ekki gleyma þúsundum ársverka á þeim tímum sem við höfum þurft að horfa upp á að iðnaðarmenn, smiðir og fleiri stéttir hafi unnvörpum farið úr landi til Norðurlanda vegna þess að samdráttur hér, m.a. í byggingariðnaði, er svo mikill sem raun ber vitni. Á sama tíma ræðum við um faglega niðurstöðu sem unnið hefur verið að á undangengnum árum um hvernig við eigum að nýta orkuauðlindir okkar og ríkisstjórnin tekur það vandaða verk í fangið og breytir þannig að fjárfesting verður hundruðum milljarða minni en ella.
Það er sárgrætilegt að horfa upp á þessi vinnubrögð og ég tel að við séum ekki að vinna málaflokknum gagn með þessu verklagi, þ.e. að hleypa pólitíkinni að þessu máli eins og gert var. Hér hafa þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks lýst því yfir að þeir hefðu verið reiðubúnir til að samþykkja það sem verkefnisstjórnin lagði til um nýtingu og vernd orkuauðlinda til lengri framtíðar, enda er það langbesti grunnurinn faglega séð til að standa að stefnumörkun í þessum mikilvæga málaflokki. En nú ber svo við að ríkisstjórnin kastar stríðshanskanum, ákveður að fara ekki eftir faglegu mati okkar helstu sérfræðinga, þvert gegn því sem upphaflega var áætlað. Menn hafa rætt um það á öllum stigum málsins að vonandi kæmi einhver salómonsdómur út úr þessari vinnu sem menn gætu horft til óháð flokkspólitískum hagsmunum og við mundum finna lendingu sem allir gætu sætt sig við.
Ég skal vera alveg hreinskilinn með að ég er ekkert að öllu leyti sáttur við þær niðurstöður sem verkefnisstjórn um rammaáætlun komst að, en einhvers staðar verða menn að lenda. Við þurfum einhverjar málamiðlanir og mér finnst ágætt að geta byggt á þeirri faglegu vinnu sem unnin hefur verið í þessu verkefni á undangengnum árum. Það var byrjað á því á síðustu öld, á tíunda áratug síðustu aldar. Þess vegna er miður að sjá núna á lokametrum þessa verkefnis, eins og hv. þm. Unnur Brá Konráðsdóttir hefur oftsinnis bent á í þessari umræðu, að málið sé komið í öngstræti.
Þess vegna biðla ég nú til stjórnarliða að brjóta odd af oflæti sínu. Við skulum fara eftir því faglega mati og því ferli sem unnið hefur verið eftir á undangengnum árum en ekki breyta leikreglunum á síðustu metrunum vegna þess að ef fram heldur sem horfir verður þessi þingsályktunartillaga aldrei langlíft plagg.