141. löggjafarþing — 52. fundur,  13. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[14:25]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er hárrétt sem hv. þingmaður bendir á. Það gefur augaleið að ef farið verður í minni fjárfestingar þýðir það minni tekjur fyrir ríkissjóð. Það hefur komið skýrt fram oftar en einu sinni og oftar en tvisvar í mínum ræðum að ég hef gríðarlegar áhyggjur af stöðu ríkissjóðs. Skuldir okkar og skuldbindingar eru um 2 þús. milljarðar kr. Frumvarpið sem við komum til með að ræða við 3. umr., ég veit ekki hvenær það verður, er mjög vanbúið. Það eiga fullt af gjöldum eftir að koma inn í ríkisreikning 2012 miðað við það sem gert er ráð fyrir í fjárlögum.

Það er mjög mikilvægt að við náum atvinnulífinu af stað og í mínum huga er ekki nema tvennt í boði. Ef við náum ekki atvinnulífinu í gang, hvort sem er á þessu sviði eða öðrum — möguleikarnir eru auðvitað fleiri — þurfum við að skera mjög niður í ríkisútgjöldum. Rekstur ríkissjóðs eins og hann er núna er algjörlega ósjálfbær að mínu viti. Það þarf ekki annað en að skoða hvað er að gerast í vaxtagjöldum ríkissjóðs sem áætlað er að verði á næsta ári 84 milljarðar kr. Vaxtajöfnuður hefur breyst um 20 milljarða kr. á tveimur árum, við erum að borga 20 milljörðum kr. meira í vexti. Það segir sig sjálft að það verður að endurraða upp á nýtt í öllu samfélaginu ef menn fara ekki að búa til fjárfestingar til að koma atvinnulífinu í gang.

Ég kom inn á það í ræðu minni að til að atvinnuuppbygging á Bakka geti átt sér stað vantar 2,6 milljarða kr. í fjárlögin. Öðruvísi verður ekki sú atvinnuuppbygging, en samt stendur hún undir hagvaxtarspánni, í henni er gert ráð fyrir þessum fjárfestingum. Það segir okkur að tekjur ríkisins munu hrapa niður ef þær ganga ekki eftir. Það er margt varhugavert sem snýr að hagvextinum og ríkisfjármálum í tengslum við þessi mál. (Forseti hringir.)