vernd og orkunýting landsvæða.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætt yfirlit yfir stöðu ríkissjóðs og mikilvægi þess að koma fjárfestingu af stað í samfélaginu til að rétta við þá erfiðu stöðu sem ríkissjóður er í og reyndar sveitarfélögin almennt í landinu líka.
Þá langar mig að spyrja hv. þingmann að öðru sem snertir virkjanir í neðri hluta Þjórsár, þá þrjá virkjunarkosti sem þar eru og hafa verið færðir yfir í biðflokk. Ef við tökum bara stöðu Suðurkjördæmis, en mesta atvinnuleysið er á Suðurnesjum, þá þarf tilfinnanlega fleiri störf í samfélagið. Við horfum upp á mikið atvinnuleysi og mikinn flótta. — Ég held, frú forseti, að ég hafi einungis fengið eina mínútu, voru það þrír þingmenn í andsvörum? Já, ég biðst afsökunar. Ég mundi vilja fá álit hv. þingmanns á þeirri innspýtingu sem svæðið mundi fá ef við færum í að virkja Þjórsá.