vernd og orkunýting landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég get að mörgu leyti tekið undir það sem hv. þingmaður bendir á. Þegar leyfðar eru frekari rannsóknir á kostum í biðflokknum þá verðum við auðvitað að vera samkvæm sjálfum okkur í því en ef við ætlum að líta svo á að aldrei megi rannsaka meira þá tökum við ekki tillit til þeirra framfara sem verða. Þetta er mjög athyglisverð nálgun.
Ég kom inn á það í ræðu minni að þrátt fyrir að tilteknir sérfræðingar segðu að þetta yrði allt í lagi og ekki þyrfti að hafa neinar áhyggjur af því sem gerðist á Hellisheiði er reyndin önnur. Þess vegna er ég mjög hugsi yfir því hvað snýr að þessum virkjunum á Reykjanesskaga. Ég viðurkenni það fúslega að mér líður ekki vel með þær í nýtingarflokki. Ég hefði talið skynsamlegra að hafa þær tvær vatnsaflsvirkjanir sem ég hef nefnt frekar í nýtingarflokki og hafa þá frekar hinar í biðflokki ef þingið hefði verið að hræra í þessu á annað borð. Mér líður illa með það að fara í frekari virkjanir á háhitasvæðum og geyma hinar, ég viðurkenni það.