vernd og orkunýting landsvæða.
Forseti. Það er athyglisvert í þessum umræðum þegar þingmenn tala eins og hér sé allt að springa af peningum og áhugasömum fjárfestum, orkufyrirtækin séu fullbúin til þess að ráðast í virkjanir eins og ekkert sé.
Nú liggur fyrir, svo að ég nefni bara eitt tiltekið dæmi sem er Hverahlíðarvirkjun Orkuveitu Reykjavíkur, að tafir á því verkefni skýrast fyrst og fremst af þremur þáttum, ekki illsku Vinstri grænna eða annarra þeirra sem þykir vænt um umhverfið. Þessir þrír þættir eru þeir að fjárhagsstaða Orkuveitunnar leyfir ekki svo miklar fjárfestingar, fyrirvaralaus samningur um orkusölu frá fyrirhugaðri virkjun liggur ekki fyrir og ekki hafa verið gerðar nauðsynlegar breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins Ölfuss. Þetta er eitt dæmi.
Er vitað hverjir ætla að vera kaupendur orkunnar fyrir norðan? Eru orkufyrirtækin okkar svo brjálæðislega vel búin að þau geti bara ráðist í virkjanir eins og ekkert sé? Þetta verður náttúrlega að vera á nótum sem eru tengdar við veruleikann. Það að tala hér um fleiri þúsund störf sem séu að glatast vegna þess að við séum ekki með færri svæði í biðflokki, biðflokki sem á að hjálpa okkur við að taka ígrundaðri og betri ákvarðanir til framtíðar, gengur náttúrlega ekki upp.
Spurning mín til hv. þingmanns er þessi: (Forseti hringir.) Deilir hann þeim áhyggjum sem margir hafa lýst hér varðandi óvissuna um jarðvarmavirkjanir? Telur hann ástæðu til (Forseti hringir.) að fara frekar af varfærni en áhættusækni, skulum við segja?