141. löggjafarþing — 52. fundur,  13. des. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[15:17]
Horfa

Birkir Jón Jónsson (F):

Frú forseti. Eins og gefur að skilja er umræðutíminn hér takmarkaður til að fara yfir þetta umfangsmikla mál en ég hef líkt og aðrir framsóknarmenn reynt að tala fyrir sáttum í því. Við höfum viðrað ýmsar hugmyndir til sátta og þá kannski ekki síst þá hugmynd að fara einfaldlega eftir faglegu mati okkar helstu sérfræðinga þegar kemur að framtíðarstefnumörkun í þessum málaflokki.

Mig langar að nefna í þessari ræðu minni þá tillögu sem hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson hefur talað fyrir á fyrri stigum, sem sagt að í umræðum um þessi mál höfum við séð að erfitt er að fjármagna rannsóknir og annan undirbúning verkefna sem raðast í biðflokk. Athygli okkar þingmanna hefur verið vakin á því að biðflokkur er ekki hugsaður sem geymsluflokkur. Því höfum við framsóknarmenn lagt til að biðflokknum verði skipt upp, annars vegar í biðflokk virkjunarkosta sem vilji væri til að geyma að taka ákvörðun um hvort ættu heima í verndar- eða nýtingarflokki og hins vegar nýjan flokk, biðflokk til nýtingar, sem væri hugsaður fyrir verkefni þar sem óskað væri tiltekinna rannsókna og undirbúnings áður en hægt væri að ákveða hvort viðkomandi virkjunarkostur ætti heima í nýtingarflokki. Væri mönnum þannig gert fært að ráðast í umhverfismat, arðsemismat og aðrar rannsóknir áður en ákveðið yrði að ráðast í framkvæmdir.

Þessi tillaga er sett fram til að flýta fyrir framgangi ýmissa virkjunarkosta í þessum málaflokki en á þá hugmynd hefur ekki verið fallist frekar en nokkrar aðrar hugmyndir sem við framsóknarmenn höfum lagt fram í þessari umræðu. Það er miður vegna þess að mér finnst sú umræða sem hefur verið hér í dag og á síðustu dögum hafa um margt verið mjög góð og málefnaleg þar sem fólk viðrar ýmis sjónarmið. Mér finnst að þeir sem tala um og fyrir hönd náttúrunnar, og vissulega orkuiðnaðarins, geti verið fullsæmdir af þeirri umræðu sem hér fer fram um þennan gríðarlega mikilvæga málaflokk.

Við höfum líka lagt það til að tvær efri virkjanir Þjórsár fari í nýtingarflokk en fallist jafnframt á þau sjónarmið að kannski bæri að skoða Urriðafossvirkjun betur og setja hana í biðflokk á meðan frekari rannsóknir fara þar fram. Ég hef ekki séð efnislegar ástæður fyrir því að slá á frest hinum tveimur virkjununum sem eru ofar. En eins og ég segi er miður að á það hafi heldur ekki verið hlustað. Mér sýnist sem ríkisstjórnin hafi einsett sér að þetta mál fari í gegn með góðu eða illu, og þá væntanlega með illu ef fram heldur sem horfir. Hér er ekki farið að upphaflegum markmiðum en það stóð alltaf til að fara að ráðum okkar helstu sérfræðinga þegar kæmi að framtíðarstefnumótun í þessum málaflokki.

Nú hafa Vinstri grænir einfaldlega ákveðið að taka slaginn sem veldur því að þetta áralanga verkefni er í raun og veru komið í uppnám og hver þingmaðurinn á fætur öðrum hefur komið hér upp og lýst sig óbundinn að afloknum næstu kosningum af þessari þingsályktunartillögu, sem er þvert á það sem upphaflega var áætlað, enda er til þess stofnað af hálfu ríkisstjórnarinnar með því verklagi að ganga gegn tillögum okkar helstu sérfræðinga og þar af leiðandi eru tillögur um það verklag sem hér er verið að tala um, að færa sex virkjunarkosti úr nýtingu yfir í bið, mjög ófaglegar. Verði ekki gerðar breytingar á þessari þingsályktunartillögu, eins og við höfum mælst til hér af heilum hug, og okkur gengur ekkert nema gott eitt til í því verkefni, er ljóst að gildi þessarar þingsályktunartillögu sem átti helst að vera stefnumarkandi fyrir komandi áratugi verður því miður ekki meira en svo að hún verður tekin upp strax að afloknum næstu kosningum. Það er miður að sjá hvernig þetta vandaða ferli er komið í uppnám (Forseti hringir.) vegna pólitískra afskipta Vinstri grænna af þessu máli.