vernd og orkunýting landsvæða.
Hæstv. forseti. Ég er á þeirri skoðun að það sé ekki of seint, eins og ég hef margoft sagt, að menn taki sér tak og horfi aðeins til upphafsins, af hverju við setjum þessa vinnu af stað, og reyni þá að laga þetta mál og klára það á þeim forsendum sem ég hef hér rakið.
Ég nefndi í ræðu minni 13. kafla í nefndaráliti meiri hlutans af því að það er mikilvægt að við áttum okkur á því, eins og hv. þingmaður var að spyrja mig hér um, hvað gerist næst. Ég vona sannarlega að sú verkefnisstjórn sem kemur til með að halda inn í þriðja áfanga verði með faglegu sjónarmiðin uppi við. Munurinn á því sem sú verkefnisstjórn sem nú mun taka til starfa fær í hendurnar og því sem hinni fyrri hafði er ramminn. Nú liggur löggjöfin fyrir og það er miklu skýrara hvert hlutverk hinnar nýju verkefnisstjórnar verður en þeirrar verkefnisstjórnar sem ég sat í og tók til starfa 2007. Lögin liggja fyrir.
Þessar ábendingar benda til þess að sá meiri hluti sem stendur að þessu áliti vilji breyta löggjöfinni. Ég get að minnsta kosti ekki skilið þetta öðruvísi vegna þess að hér beinir meiri hlutinn því á bls. 25 í nefndarálitinu til ráðherra og Alþingis að láta í fyrsta lagi meta hvort ástæða sé til að rammaáætlun taki einnig til smærri virkjana. Ég spurði hv. þm. Álfheiði Ingadóttur sem situr í nefndinni hvað þetta þýddi, hvort þá væri verið að tala um allar virkjunarframkvæmdir, alla litlu bæjarlækina sem við þekkjum hér til sveita og hv. þingmaður þekkir vel úr sínu kjördæmi. Já, þá kom fram að þarna að baki væri sú hugsun að það sé ekki alltaf stærð virkjunar sem sé ákvarðandi varðandi áhrifin og þess vegna þyki mönnum rétt að taka þá umræðu hvort allar virkjanir eigi að fara í rammaáætlun. Þá erum við að tala um miklar breytingar. Þá erum við að tala um stóraukin verkefni fyrir verkefnisstjórn og þá erum við að tala um (Forseti hringir.) allt annað umhverfi fyrir þá bændur sem eiga þessar jarðir.