vernd og orkunýting landsvæða.
Í mínum huga er þetta bara svona. Allir — (Forseti hringir.)
(Forseti (ÁÞS): Ég bið hv. þingmann að ávarpa forseta í upphafi ræðu sinnar.)
Virðulegi forseti. Ég skal segja virðulegi forseti eins oft og mögulegt er, virðulegi forseti. Það væri áhugavert að sjá, virðulegi forseti, hvort það sé almenn regla hér í þinginu og sérstaklega áhugavert að sjá hvort virðulegur forseti sé vanur að banka í bjölluna þegar menn segja ekki virðulegi forseti í fyrstu málsgrein ræðu sinnar eða hafi það sín fyrstu orð. Það væri áhugavert, virðulegi forseti, að kanna það alveg sérstaklega, virðulegi forseti.
Virðulegi forseti. Í mínum huga er það bara nákvæmlega þannig, virðulegi forseti, að Vinstri grænir lutu í gras, þeir sviku sitt helsta kosningaloforð, virðulegi forseti. Gott ef formaðurinn, hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon, sagði það ekki kvöldið fyrir kosningar þegar hann lofaði kjósendum Vinstri grænna, virðulegi forseti, að Vinstri hreyfingin – grænt framboð mundi aldrei sækja um aðild að Evrópusambandinu, virðulegi forseti. Það var bara gert til að fá eitthvað svona í staðinn.
Virðulegi forseti. Allt tal sem hv. þingmenn Vinstri grænna hafa haft um fagleg vinnubrögð, virðulegi forseti, sýnir sig í þessu plaggi sem allir voru sammála um að vinna til að við hefðum faglegan grundvöll, virðulegi forseti, en hv. þingmönnum Vinstri grænna var nokk sama um þau prinsipp eins og önnur, virðulegi forseti, því að þegar kemur að staðreyndum mála, raunveruleikanum, virðulegi forseti, kaupa þeir bara hlutina eins og var gert hérna á hrossamarkaði. Annar fær þetta, hinn hitt. Okkur langar í þetta, virðulegi forseti, sögðu Vinstri grænir og seldu þar af leiðandi stefnu sína og helsta kosningaloforð, virðulegi forseti, sem var það að sækja aldrei um aðild að Evrópusambandinu, virðulegi forseti.