141. löggjafarþing — 53. fundur,  14. des. 2012.

beiðni nefndarmanna um gögn um fjárlög.

[10:51]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Katrín Júlíusdóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég fór vandlega yfir þetta mál með lögfræðingum mínum í ráðuneytinu og það er ekkert sem segir að menn eigi að hafa óheftan aðgang að vinnugögnum sem tengjast öllum þessum undirbúningi. Við reyndum að nálgast málið af eins mikilli jákvæðni og hægt var, vorum tilbúin að opna fyrir aðgang að þessum gögnum undir trúnaði þrátt fyrir að ekkert segi okkur að öll vinnuskjöl og öll minnisblöð eigi að vera lögð fram til fjárlaganefndar þó að beðið sé um þau.

Þetta mundi breyta allri fjárlagagerðinni verulega. Ég held að menn ættu að hafa í huga hvaða afleiðingar það gæti haft ef þetta yrði gert, sérstaklega þegar menn biðja um vinnugögn og tillögur sem rata síðan ekki inn í fjárlagafrumvarpið.

Frú forseti. Það er eðlilegt að óska eftir gögnum og vinnuskjölum sem tengjast tillögum sem sannarlega eru lagðar fram en það er allt annar handleggur þegar beðið er um gögn sem snúa að tillögum sem ná síðan ekki fram að ganga. (Forseti hringir.) Við erum með ýmis vinnuskjöl í gangi og það er eðlilegt, en það er ekkert sem segir að menn eigi að hafa óheftan aðgang að þeim.