141. löggjafarþing — 53. fundur,  14. des. 2012.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands.

446. mál
[20:24]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands, nr. 121/2008, með síðari breytingum. Það fjallar um hlutverk þróunarsamvinnunefndar en það er utanríkismálanefnd í heild sinni sem flytur þetta frumvarp.

Frumvarpið lýtur að breytingu á 2. gr. gildandi laga sem fjallar um þróunarsamvinnunefnd og er lagt fram í því skyni að skýra hlutverk þessarar nefndar skv. 2. gr. laga um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands. Þannig er fyrirhugað að taka af allan vafa um aðkomu Alþingis og fulltrúa þingflokkanna að stefnumarkandi umræðu og ákvörðunum ráðherra um málefni alþjóðlegrar þróunarsamvinnu, tvíhliða sem marghliða. Það er mikilvægt að mati utanríkismálanefndar að Alþingi hafi skýra aðkomu í ljósi þeirra miklu fjármuna sem veittir eru til þróunarsamvinnu nú þegar og ætlunin er að auka á næstu árum. Þetta var markmið með lögunum sem sett voru árið 2008 en það hefur komið í ljós við framkvæmd að það skortir nokkuð á að nákvæmlega það markmið hafi gengið eftir.

Utanríkismálanefnd hefur um nokkurt skeið haft alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands til umfjöllunar. Meðal þeirra atriða sem lögð hefur verið áhersla á við umfjöllunina er aðkoma Alþingis að málefnum tengdum þróunarsamvinnu og verkefni og skipan þróunarsamvinnunefndar í kjölfar niðurlagningar stjórnar Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, sem var ákveðið með lögunum um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands frá árinu 2008.

Utanríkismálanefnd ítrekar nú sem fyrr mikilvægi þverpólitísks samstarfs og samstöðu sem og langtímastefnumörkunar á sviði þróunarsamvinnu. Í þessu frumvarpi nefndarinnar er lagt til að 3. mgr. 2. gr. laganna verði ítarlegri en nú er og þar verði kveðið á um að þróunarsamvinnunefnd kjósi sér formann og varaformann úr hópi nefndarmanna, sem ekki hefur verið í gildandi lögum, að ráðherra tilnefni einn fulltrúa til starfa með nefndinni og að forstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands eða fulltrúi hans sitji jafnframt fundi nefndarinnar.

Með þessu er í fyrsta lagi tryggt að þróunarsamvinnunefnd verði kölluð saman að beiðni formanns eða varaformanns í forföllum þess fyrrnefnda. Í öðru lagi er tryggt að nefndin eigi gott samstarf við ráðuneytið og Þróunarsamvinnustofnun.

Utanríkismálanefnd hefur fjallað nokkuð um þetta málefni, eins og ég gat um, og rætt bæði við fulltrúa í þróunarsamvinnunefnd, við utanríkisráðuneyti og við starfsfólk Þróunarsamvinnustofnunar og almennt má segja að það sé góður samhljómur um þær breytingar sem nefndin hefur lagt hér til. Enda þótt hér sé um að ræða frumvarp nefndar mun ég þó leggja til, virðulegur forseti, að lokinni þessari umræðu að málinu verði vísað til 2. umr. en einnig til utanríkismálanefndar þar sem hún hyggst kanna örfá atriði í þessu lagafrumvarpi nánar á milli umræðna. Ég legg því til að málinu verði vísað til nefndarinnar og til síðari umræðu að lokinni þessari umræðu.