vernd og orkunýting landsvæða.
Virðulegi forseti. Það er auðvitað mikill tvískinnungur í allri þessari umræðu. Manni finnst hann einmitt endurspeglast í afstöðu margra innan Vinstri grænna vegna þess að hér er verið að tala um virkjunarkosti sem í sjálfu sér eru mjög umhverfisvænir og um sjálfbæra nýtingu á þessum endurnýjanlegu orkugjöfum.
Það er ekkert ólíklegt að Evrópusambandið muni í gegnum þennan samning eða samningaviðræður reyna að seilast í orkuauðlindir okkar. Ég er alveg sannfærður um að það verði vaxandi þrýstingur frá Evrópusambandinu í þessum viðræðum. Ég tala nú ekki um ef einhver samningur yrði afgreiddur sem ég hef reyndar enga trú á og er algerlega á móti. Það er ekki ólíklegt að þeir muni reyna að seilast í orkuauðlindir okkar og alveg örugglega í sjávarútvegsauðlindina. Það er alveg ljóst í mínum huga.
Í Evrópu er staðan þannig að ég held að í Þýskalandi sé um 11% af orkunni framleitt með endurnýjanlegum orkugjöfum. Evrópa hefur sett sér markmið um að koma því upp í um 20% fyrir árið 2020. Á meðan erum við aftur á móti með 90% hérna, ef við tölum um fyrirtæki og slíkt en það er eitthvað minna þegar við tökum eldsneytisbrunann okkar inn í. Við byggjum náttúrlega nánast alfarið á endurnýjanlegum orkugjöfum. Við eigum eftir að sjá það vaxa í framtíðinni þannig að við erum í algerri sérstöðu hvað varðar þessi tækifæri. Við eigum að hugsa fyrst og fremst um að nýta þau fyrir þjóðina sem býr í landinu. Við eigum ekki að gefa þau frá okkur fyrir nokkra muni. Það verður enginn afsláttur veittur af því, hvorki á orkusviðinu né sjávarútvegssviðinu.