vernd og orkunýting landsvæða.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég hef tekið þátt í slíkum umræðum þar sem maður hefur verið á ferðalögum erlendis og eins hér heima. Ég held að umræðan sé á miklum villigötum.
Ég hef lýst því yfir að við eigum að nota orkuna til að framfleyta þjóðinni, við eigum að nota orkuna til atvinnuuppbyggingar, til notkunar fyrir heimili og fyrirtæki á Íslandi. Við eigum hins vegar ekki að fara út í það að verða hrávöruútflytjandi á orku — við eigum að draga línuna þar — en ég held að veruleg hætta sé á því. Við horfum upp á það núna að Landsvirkjun og fleiri aðilar eru þegar farnir að tala um að nú sé mikilvægt að fara að hækka orkuverð og færa það nær því sem þekkist á heimsmarkaði eða því sem hægt er að fá á markaðsverði fyrir orku erlendis. Í umræðunni eru menn þegar farnir að undirbúa sig undir það að flytja orkuna út með sæstreng. Ég er einfaldlega ósammála þeirri þróun og ég held að hún muni alltaf leiða til þess á endanum að orkuverð hækki til heimila og fyrirtækja hér á landi, og maður sér að margir eru ósammála því. Alþýðusamband Íslands hefur sent frá sér efni um þetta og fleiri aðilar eru andvígir því að Ísland feti þá braut. Ég held að jafnvel þó að menn muni segja það í orði að þetta eigi ekki að hafa áhrif til hækkunar á orkukostnaði fyrir innlend heimili þá sé alltaf veruleg hætta á því að í tímans rás muni koma aukin krafa um það þegar við komum á innri markað að orkuverðið hækki á Íslandi til að hægt sé að flytja út orku, hún verði nær heimsmarkaðsverði.