141. löggjafarþing — 55. fundur,  18. des. 2012.

störf þingsins.

[10:47]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf):

Forseti. Mig langar til að greina frá mjög ánægjulegri ferð sem ég fór í til Feneyja ásamt nefndarritara til að kynna fyrir Feneyjanefndinni svokölluðu helstu nýmæli í stjórnarskrárfrumvarpinu sem og þann feril sem unnið hefur verið eftir og ferlið sem þetta mikla mál hefur farið í gegnum. Ég kynnti þetta í mjög grófum dráttum.

Frá því er skemmst að segja að nefndarmenn, allt lögfræðingar og sérfræðingar í stjórnskipun, voru mjög áhugasöm um plaggið sjálft, allan ferilinn og vinnuna sem unnin var áður en málið kom inn í þingið. Fulltrúar nefndarinnar munu koma hingað um miðjan janúar og ráðgert er að sá hópur skili því sem kallað er, með leyfi forseta, „preliminary opinion“ um það bil tveimur vikum seinna. Í sendinefndinni verða fulltrúar frá Þýskalandi, Frakklandi, Danmörku, Belgíu og Noregi og einhverjir gætu bæst við.

Forseti. Í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur verið gengið eftir því hvort stjórnarandstaðan vilji bæta einhverju við þá stuttu beiðni sem send var um að málið yrði tekið upp. Þau hafa ekki viljað það. Það vakti því sannast að segja undrun mína þegar starfsmaður nefndarinnar tjáði mér að hann hefði fengið póst eða skeyti frá hv. þm. Ólöfu Nordal þar sem hún vakti athygli hans á því að það væru síður en svo allir sáttir við það frumvarp sem hér liggur fyrir.

Feneyjanefndin er ekki í liði með einum eða neinum. Auðvitað hefur aldrei staðið annað til en að skipuleggja heimsókn starfshópsins og hverja hann ætti að hitta og tala við en í samráði við stjórnarandstöðuna. En kannski vill hún það frekar en að hún vildi senda einhver skilaboð með fulltrúa frá Alþingi sem fór þangað sem í þessu (Forseti hringir.) tilfelli var undirrituð. Ef stjórnarandstaðan vill það ekki er ekkert við því að gera. Við höldum ótrauð áfram. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) (VigH: Stjórnarandstaðan …)