störf þingsins.
Hæstv. forseti. Athygliverð tíðindi bárust af fundi utanríkismálanefndar í morgun og hvet ég þá hv. þingmenn sem þar starfa og okkur öll til að taka þátt í umræðunni um þessa tillögu þegar hún kemur hingað.
Mig langar að ræða aðeins um stjórnarskrármálið vegna þess að formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, hv. þm. Valgerður Bjarnadóttir, gerði okkur áðan grein fyrir ferðum sínum til Feneyja. Ég hafði beðið spennt eftir að heyra í hv. þingmanni eftir að hún kom heim vegna þess að ég hef kallað eftir því að lögð verði fram í þinginu tímaáætlun um það með hvaða hætti á að vinna þetta mál í þinginu. Nú eru mjög fáar vikur eftir þangað til þinginu verður slitið og farið verður í kosningar og enn hef ég ekki séð þessa tímaáætlun.
Ég hef þó lesið í fjölmiðlum að þegar Feneyjanefndin hefur tekið að sér verkefni sem þessi hafi hún alla jafna tekið sér nokkra mánuði í að skoða stjórnarskrárbreytingarnar. Þess vegna tel ég að við verðum að fá upplýsingar um málið hér og að þeir þingmenn og ráðherrar sem tala fyrir stjórnarskrármálinu upplýsi þingheim um það hvernig þessi ferill á allur saman að ganga fram. Hversu lengi ætlar Feneyjanefndin að vera með þetta mál í sínum meðförum? Við verðum að vitum um það bil um hvað við erum að tala.
Ég undrast að ekki hafi farið fram meiri umræða um þetta frá því að við fengum þær fregnir að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ætlaði að senda þetta mál til umsagnar í Feneyjanefndinni og kalla hér með eftir því enn og aftur að tímaáætlun verði lögð fram sem og að við fáum upplýsingar um það hversu lengi hún muni hafa málið til meðferðar.