vernd og orkunýting landsvæða.
Forseti. Ég ætla að byrja á því að fagna tilteknum atriðum í því sem komið hefur komið fram í máli þingmanna Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í þessum umræðum og jafnframt öðrum þeim sem hafa komið fram af hálfu forsvarsmanna Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Þeir knýja nú á um fagleg og vönduð vinnubrögð þegar kemur að náttúru Íslands. Það er vel. Það er stefnubreyting og það eru tímamót. Það eru tímamót ef hugur fylgir máli.
Ég held satt best að segja að við kunnum að standa hér á nokkuð stærri tímamótum en flest okkar gera sér grein fyrir ef rétt er á málum haldið inn í framtíðina og ef hugur fylgir máli. Í stað þess að deila um allt Ísland er ágreiningur okkar í þessum 2. áfanga rammaáætlunar þrátt fyrir allt tiltölulega afmarkaður. Ágreiningurinn er alvarlegur, líka innan stjórnarliðsins, en hann er afmarkaður. Bara það eitt er framför.
Ágreiningurinn snýst að mestu um tiltölulega fáar virkjunarhugmyndir og hvort tiltekin landsvæði eigi að vera í nýtingarflokki eða tímabundið í bið til frekari rannsókna, gagnaöflunar og faglegrar yfirvegunar áður en endanleg ákvörðun er tekin.
Áfangaskýrslu um framhaldið á að vera skilað eftir rétt rúmt ár. Biðin sem kveðið er á um er ekki löng og reyndar allt of stutt. Þótt stór orð hafi verið látin falla í þessum umræðum um að sáttin sé rofin held ég samt að þegar um hægist og rykið fellur standi eftir, þegar litið er til baka, að við höfum í reynd þokast nokkuð áleiðis. Ef alvara er á bak við þau orð að við eigum að vanda okkur, að við eigum að hafa fagleg og málefnaleg sjónarmið í öndvegi, ættum við þverpólitískt að fagna því að fleiri svæði séu sett í biðflokk. Það er nefnilega þar sem þau fá frekari yfirlegu og faglega skoðun.
Hæstv. forseti. Ég ber enn þá von í brjósti að þingheimur beri gæfu til að færa hið minnsta Krýsuvíkursvæðið í hjarta Reykjanesfólkvangs, Sveifluháls og Sandfell sunnan Keilis í bið þótt ekki væri nema í rétt rúmt ár. Hver tapar á slíku? Hvernig ætlar fólk að svara þegar spurt er hvort okkur sé leyfilegt að láta vera uppi minnsta vafa um það hvort hætta steðji hugsanlega að Mývatni? Um þetta eru áhöld og samt er Bjarnarflag í nýtingarflokki.
Þetta plagg, þessi tillaga, er nefnilega sár og erfið málamiðlun ekki síst fyrir þau sem unna náttúru Íslands og vilja fara að öllu með gát. Í nýtingarflokki næstu fjögur ár er orkuöflun upp á um það bil eina og hálfa Kárahnjúkavirkjun. Þykir fólki það virkilega ekki nóg? Og hvenær er þá komið nóg?
Guðmundur Páll Ólafsson heitinn sagði í umsögn sinni sem hann skilaði í nóvember 2011 að ef við værum að vanda okkur sem skyldi tækjum við kannski fjóra virkjunarkosti til skoðunar í einu en ekki marga tugi eins og raun ber vitni. Það er einmitt vegna þess að við viljum vanda okkur að enn fleiri svæði eiga heima í bið en ekki nýtingu.
Við hljótum, allir Íslendingar, að fagna því til framtíðar að í skjól séu komin svæði á borð við hið ómetanlega Torfajökulssvæði og Kerlingarfjöll, Þjórsárver og Jökulsá á Fjöllum. Af þessu eiga allir flokkar á Íslandi og á Alþingi að vera stoltir og taka hlutdeild í því, fagna sáttinni við framtíðina sem í slíku felst.
Afar dýrmæt svæði sem nú eru í bið eiga hiklaust heima í vernd, Skjálfandafljót, jökulsárnar í Skagafirði, Skaftá, Hólmsá, Hvítá í Árnessýslu svo eitthvað sé nefnt. Það er von mín að þingheimur framtíðarinnar beri gæfu til að sameinast um vernd þessara ómetanlegu svæða sem verða Íslendingum framtíðarinnar jafnt sem alþjóðlegum gestum okkar til ævarandi yndisauka.