141. löggjafarþing — 55. fundur,  18. des. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[14:56]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Kristján Þór Júlíusson) (S) (andsvar):

Forseti. Er nema von að verkalýðshreyfingin á Íslandi sé komin upp á móti þessari ríkisstjórn? Er það nema von þegar fulltrúar Vinstri hreyfingarinnar svokallaðrar hér á Alþingi ganga hér upp í pontu og tala þannig um tillögu sem vinnur gegn því að verðtryggðar skuldir heimilanna hækki á bilinu 6–8 milljarða kr. ofan á þá 28 milljarða sem skattahækkanir þessarar ríkisstjórnar hafa þýtt fyrir heimilin í landinu? Þegar reynt er að sporna við frekari ádrætti á þær skuldir kemur hingað upp hv. þm. Álfheiður Ingadóttir, fulltrúi vinstri manna á Íslandi, og segir: Nú eru menn að tala um brennivín. (ÁI: Að sjálfsögðu.) Það er ekki hægt að gera minna úr þeim vandræðum sem fjölskyldur þessa lands eiga við að glíma um þessar mundir undir þeirri stjórnarstefnu sem hér ræður ríkjum, ekki hægt að gera minna úr þeim.