dómstólar.
Frú forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir þessa prýðilegu ræðu þar sem hann dró fram mörg álitaefni í frumvarpinu, af því að auðvitað eru þau til staðar, það er alveg á hreinu. Við erum að leggja til breytingar sem við getum náttúrlega ekki staðhæft nokkuð um hvernig eigi eftir að gera sig þegar fram í sækir.
Hvað varðar aldurinn og varadómarana og hvað sé mikilvægt í því held ég að það sé bara matsatriði sem við getum velt fyrir okkar, en ég held að það sé sjálfsagt mál að stíga það skref. Það má alveg segja að það hefði átt að skoða það heildstætt hvort breyta ætti slíkum aldursmörkum varðandi atvinnuþátttöku almennt, en ég held að ekkert mæli samt sem áður gegn því að það sé gert hér. Það kemur þá bara í ljós hvernig það reynist.
Hvað varðar hins vegar heimildina til ársloka 2016 til að setja varadómara í einstök mál þó að ekkert sæti dómara sé autt get ég fallist á að það hefði mátt hafa þennan tíma styttri, það má færa rök fyrir því. Það er í sjálfu sér ekkert sem kallar á að þetta sé fjögur ár, við gætum með mjög einföldum hætti tekið þetta aftur inn í þingið eftir styttri tíma til að meta það og framlengja þetta ákvæði ef nauðsynlegt er talið að gera það og reynslan er góð. Ég get því alveg fallist á að það má velta því fyrir sér hvort sá tími ætti að vera styttri og við getum skoðað það. En ég held að það sé alveg sjálfsagt að prófa 70 ára aldursmarkið og þar yfir, eins og var rætt hérna áðan, af því að ekkert mælir gegn því, þó svo að ekki hafi verið tekin ákvörðun um slíkt almennt á vinnumarkaði.