141. löggjafarþing — 55. fundur,  18. des. 2012.

dómstólar.

475. mál
[21:35]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Björgvini G. Sigurðssyni fyrir þetta andsvar. Ég get verið sammála því að í tilviki 70 ára aldursmarkanna er það auðvitað álitamál. Það er álitamál hvort það eigi að halda sig við jafnstíf aldursmörk í þessu sambandi og almennt gilda í landinu. Það má færa rök fyrir því að gott sé að kalla til reynda einstaklinga með mikla þekkingu á viðkomandi sviði og í þessu tilviki mikla reynslu af dómstörfum og nýta krafta þeirra áfram.

En ég vildi fyrst og fremst, hæstv. forseti, skoða þetta í miklu víðara samhengi. Ég tel að svona meginstefnubreyting sem hér er sett fram í samhengi við önnur ákvæði sem ætlað er að bregðast við tímabundnum aðstæðum og tímabundnum uppákomum eigi kannski ekki heima í slíku frumvarpi. En ég endurtek, hæstv. forseti, það er matsatriði hvernig það er og það má færa rök fyrir því með og á móti.

Ég velti hins vegar áfram fyrir mér 5. gr., varðandi tímafrestinn. Ég get tekið undir að það væri til bóta ef tímafresturinn væri styttur. Ég mundi þó kannski fyrst og fremst leggja til við hv. þingmann, sem er formaður allsherjar- og menntamálanefndar, að kafað verði svolítið ofan í rökin fyrir þessu milli umræðna. Hugsanlega eru rökin fyrir þessari fjölgun dómara þannig að eðlilegra væri að fara einhverja aðra leið en hér er lögð til, í stað þess að byggja á varadómaraheimild verði fjölgað um einn eða tvo eða þrjá dómara til fjögurra ára með einhverjum aðferðum. Ég skora á hv. formann að beita sér fyrir því (Forseti hringir.) að skoðun af því tagi fari fram.