dómstólar.
Frú forseti. Þingmaðurinn og aðrir sem hafa fjallað um þennan þátt málsins hérna í umræðunni í kvöld hafa fært ágæt rök fyrir skoðunum sínum um ákveðin álitaefni frumvarpsins, hvað varðar tímalengd og varadómaraheimildina o.fl., sem ég held að sé sjálfsagt að verða við að skoða. Þetta eru málefnalegar athugasemdir og ábendingar um málið í heild sinni og ég tel ekkert því til fyrirstöðu að taka málið inn til nefndar á milli umræðna og skoða sérstaklega þann þátt sem lýtur að fjórum árunum. Auðvitað er málið allt til umræðu um leið en það er ekkert sem mælir gegn því að taka það til betri skoðunar eða ræða það fyrst óskað er eftir því með málefnalegum hætti. Ég held að það geri ekkert annað en að styrkja niðurstöðuna, lokaniðurstöðu málsins, hver sem hún svo verður eftir þá yfirferð áður en málið gengur til 3. umr.