dómstólar.
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu en ég legg áherslu á að mér finnst að hv. allsherjarnefnd eigi að taka þetta til skoðunar, kalla til sín ráðuneytið og eftir atvikum réttarfarsnefnd og aðra sem að þessu koma og velta fyrir sér hvort það sé hægt í fyrsta lagi að greina þörfina fyrir fleiri dómara í Hæstarétti á næstu árum, hvort hægt sé að áætla hvað þörfin verður mikil. Þegar sú niðurstaða liggur fyrir verði skoðað hvort aðrar leiðir séu í stöðunni.
Ég geri ráð fyrir því að ráðuneytið og réttarfarsnefnd hafi eitthvað velt þessu fyrir sér en mér finnst eðlilegt að mat á þessu fari fram áður en nefndin lýkur störfum. Ef þörfin er fyrir hendi og er raunveruleg og knýjandi verði hugsanlega brugðist við með því, eins og ég nefndi áðan í ræðu minni, að skipað verði í Hæstarétt til lengri tíma en þá eftir venjulegri aðferð. Áhugasamir gætu sótt um stöður hæstaréttardómara og væru skipaðir með einhverjum hætti til lengri tíma, frekar en að þetta sé haft jafnopið og 5. gr. kveður á um.