141. löggjafarþing — 55. fundur,  18. des. 2012.

lækningatæki.

67. mál
[21:45]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Sigríður Ingibjörg Ingadóttir) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Í frumvarpinu er skrá yfir þau tollnúmer sem falla undir þetta gjald. Ítarlega var farið yfir þann lista og á honum voru ekki vöruflokkar sem ekki væri eðlilegt að telja til lækningatækja, en þó kom fram að skipta þyrfti upp einum tollflokki og bæta við nýjum sem settur hefur verið þarna inn, sá sem varðar tannlæknastóla, en út hafa verið teknir stólar rakara og væntanlega hárgreiðslustólar almennt.