141. löggjafarþing — 56. fundur,  19. des. 2012.

störf þingsins.

[10:41]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Mig langar að lýsa talsverðum áhyggjum af því hvert þetta samfélag í þinginu er að stefna og hugmyndir ríkisstjórnarflokkanna þegar við horfum á frumvarpið sem hér verða greidd atkvæði um á eftir, um lækningatæki. Svo sem enginn umsagnaraðili er sérstaklega á móti því að haft sé einhvers konar eftirlit með lækningatækjum en öllu má nú nafn gefa og menn verða að kunna sér hóf í þeirri skattheimtu sem lagt er af stað í.

Hér getur að líta yfirlit yfir þá tollflokka sem munu sæta eftirlitsgjaldi sem við teljum að sé ekkert annað en skattur. Undir þessa skilgreiningu um lækningatæki falla hinir og þessir hlutir sem við notum í okkar daglega lífi á nánast öllum heimilum landsins, mundi ég segja. Við erum að tala um smokka og aðrar getnaðarvarnir, við erum að tala um dömubindi og tíðatappa, bleiur og bleiufóður, við erum að tala um linsuvökva og við erum að tala um tannþráð — sem lækningatæki. Ég verð að segja að hér er augljóst dæmi um það að menn kunna sér ekki hóf og það verður að endurskoða listann sem fellur undir þessa tollflokka vegna þess að það er ekki hægt að rökstyðja með nokkrum hætti að þessir hlutir, margir hverjir, falli undir þá skilgreiningu sem er í lögum á hugtakinu lækningatæki.

Skýrasta dæmið er tollflokkur 9619 sem heitir Dömubindi og tíðatappar, bleiur og bleiufóður fyrir börn og svipaðar vörur úr hvers konar efnum. Hvernig er með nokkrum rökum hægt að heimfæra þennan flokk undir skilgreininguna á lækningatækjum?