141. löggjafarþing — 56. fundur,  19. des. 2012.

störf þingsins.

[10:44]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil líka vekja athygli á því að hjólastólaskatturinn og smokkaskatturinn sem er, eins og nafnið gefur til kynna, skattur á lækningatæki kemur harðast niður á heilbrigðisstofnunum. Það er nánar tiltekið 32 millj. kr. skattur á spítalana. Menn eru að berjast í sparnaði með hverja einustu krónu og þá læðir stjórnarmeirihlutinn inn þessari skattlagningu í skjóli nætur. Hafi einhver talið þörf á þessum skatti held ég að hv. þm. Unnur Brá Konráðsdóttir hafi bæði í gærkvöldi og áðan farið ágætlega yfir það hversu fráleitur hann er.

Í umfjöllun hv. efnahags- og viðskiptanefndar hefur þó verið upplýst, svo ég komi þeim upplýsingum áleiðis, að skattahækkanir ríkisstjórnarinnar muni skila sér í 6–8 milljarða kr. hækkun á lánum landsmanna. Þetta var ekki skoðað af neinu viti áður en ríkisstjórnin lagði þetta fram, eins og við þekkjum hafði hæstv. forsætisráðherra ekki hugmynd um hvaða afleiðingar þetta hefði, en ég held að það sé rétt að þessar upplýsingar komi fram þannig að allir séu meðvitaðir um þau áhrif sem þetta hefur. Auðvitað hafa skatta- og gjaldahækkanir bein áhrif á heimilin í landinu en þetta eru óbeinu áhrifin.

Ég vek sömuleiðis athygli á því að fyrirspurnum í tengslum við þessi mál og önnur er ekki svarað. Það er orðin regla frekar en undantekning ef fyrirspurnum er svarað. Þetta er nýtt, kom í tíð þessarar norrænu velferðarstjórnar, (Forseti hringir.) og gerir það að verkum að hv. þingmenn geta ekki sinnt þeim störfum sem þeim ber skylda til að sinna.