141. löggjafarþing — 56. fundur,  19. des. 2012.

störf þingsins.

[11:00]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Eygló Harðardóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Vigdís Hauksdóttir sögðu réttilega að mjög mikilvægt væri að málið yrði leyst í samvinnu við þingið og að þingmenn fengju að fylgjast með því að það er svo sannarlega rétt að lyktir þess munu hafa áhrif á það hvernig og hvort okkur tekst að byggja hér upp það samfélag sem við viljum búa í.

Eins og áður hefur komið fram þurfum við að nota næstu árin til að byggja hér upp öflugt atvinnulíf, öflugt efnahagslíf. Ef okkur tekst það náum við líka að byggja upp öflugt velferðarkerfi því að grunnurinn að velferðarkerfinu er að einhverjir framleiði fjármuni og búi til skatttekjur fyrir ríkið. Það er alveg óhætt að fullyrða að velferðarkerfið mun ekki standa undir nafni ef það fær ekki þær tekjur sem það þarf og þær verða fyrst og fremst til í atvinnulífinu, þ.e. í afleiddum skatttekjum og slíku.

Ég vil í því sambandi nefna annað sem ég hef miklar áhyggjur af, þróunina sem verið hefur undanfarið í sjávarútveginum. Við heyrum meira og meira af því að sjávarútvegsfyrirtæki, sérstaklega lítil fyrirtæki, velti fyrir sér að hætta rekstri og falbjóði sig þeim sem stærri eru. Það mun leiða til samþjöppunar. Ég held að það sé mikilvægt fyrir okkur að sýna sjávarútveginum strax hver framtíðarsýnin er svo við horfum ekki upp á það að menn selji fyrirtæki sín vegna óvissunnar einnar saman. Ljóst er að búið er að gera reksturinn erfiðari á sama tíma og markaðir eru erfiðari. Það er í rauninni í takt við annað sem þessi ríkisstjórn hefur verið að gera þegar kemur að atvinnuvegum landsins.