141. löggjafarþing — 56. fundur,  19. des. 2012.

greiðsla kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara.

498. mál
[11:52]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér erum við í raun að veita viðbótarheimild til fjárveitingar til umboðsmanns skuldara, sem er embætti sem sett var á laggirnar eftir hrun til að greiða úr alvarlegum skuldavanda íslenskra heimila sem mörg hver voru og eru í skuldafjötrum. Það hefur verið hlutverk núverandi ríkisstjórnar að taka ákvörðun um bæði niðurskurð vegna tekjurýrnunar ríkissjóðs og einnig aukin útgjöld til að mæta afleiðingum hruns íslenska fjármálakerfisins. Það verða svo allir að eiga það við sig hér í salnum sem koma og gagnrýna það hástöfum og vilja ekki horfast í augu við raunveruleikann.