141. löggjafarþing — 56. fundur,  19. des. 2012.

búnaðarlög og framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum.

448. mál
[12:17]
Horfa

Illugi Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil taka fram að þótt ég skilji áhyggjur hv. þm. Péturs H. Blöndals er rétt að hafa í huga að það er enginn neyddur eða skyldaður til að hlíta leiðbeiningunum frá þessari leiðbeiningarmiðstöð eða sækja sér þær. Þeir bændur sem vilja fara sínar eigin leiðir geta gert það áfram nú sem áður.