141. löggjafarþing — 57. fundur,  19. des. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[16:39]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Björn Valur Gíslason) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekkert að greina það sérstaklega hvað hv. þingmaður var að brigsla um varðandi lögbrot við samstarfsfélaga sína. Hún verður að gera grein fyrir því. Ég er henni ósammála og mér finnst það slæmt, og hefði átt von á öðru frá hv. þm. Ragnheiði Ríkharðsdóttur, að hún brigsli mér og öðrum um lögbrot við vinnu fjárlaga. Ég átti ekki von á því. En það er þá bara þannig og það hefur verið staðfest og ítrekað í andsvari við mig.

En aftur að ríkisreikningi og mun á ríkisreikningi og rekstri ríkisins samkvæmt fjárlögum. Er hv. þingmaður mér ósammála um þennan mun? Í hverju felst þessi munur? Getur hv. þingmaður virkilega haldið því fram aftur að rekstur ríkisins samkvæmt fjárlögum og innan fjárlagaársins sé sambærilegur við það sem ríkisreikningur hefði fram að færa vegna eðlis þessa munar sem ég taldi hér upp og kemur fram í áliti fjárlaganefndar sem hv. þingmaður skrifaði undir rétt eins og ég, svo að ég taki það sem dæmi. Það er hægt að fletta upp á fleiri slíkum dæmum á undanförnum árum. Mér finnst það óréttlátt og mér finnst það ósanngjarnt en það er þá bara umræða sem menn vilja halda hér uppi. Hún er ekki málefnaleg. Það er ekki hægt að rökræða um hana á þeim nótum að verið sé að ræða um fjárlögin því að eðli munarins á milli ríkisreiknings og niðurstöðu fjárlagaársins er vegna tiltekinna einskiptishluta.