fjárlög 2013.
Virðulegi forseti. Mig langar að minna hv. formann fjárlaganefndar á að við ræddum fyrr um 33 milljarða til Íbúðalánasjóðs. Átti það ekki að hluta til að fara inn í fjáraukalögin en var sett inn í ríkisreikning? (BVG: Það var gert.) — En af því að hv. þingmaður ræddi hér áðan, hv. formaður fjárlaganefndar, um að ég brigslaði þingmönnum hægri, vinstri, út og suður um lögbrot þá ítreka ég það sem ég sagði að ég teldi að sú ákvörðun meiri hluta fjárlaganefndar að hverfa frá þeim forsendum sem kynntar voru varðandi sýningu Náttúruminjasafnsins í Perlunni, hvað varðar aðgangseyri og rekstur, hafi aldrei verið rædd í fjárlaganefnd. Það kom ekki fram fyrr en í nefndaráliti sem breytt var á milli þess nefndarálits sem tekið var út úr fjárlaganefnd og birtist síðan hér. Ég sagði að ég teldi að sú aðferðafræði jaðraði við lögbrot. Það kann að vera sterkt til orða tekið en það er örugglega (Gripið fram í.) að minnsta kosti algert stílbrot á því sem hingað til hefur verið viðhaft.