141. löggjafarþing — 57. fundur,  19. des. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[18:24]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Í beinu framhaldi af því sem hv. þingmaður sagði áðan um skuldastöðu og vaxtagreiðslur þá skulum við gæta okkur á því að vera ekki að borga 2–3 milljarða á ári hverju bara fyrir það að gera ekki neitt varðandi nýbyggingu fyrir Landspítalann. En ég deili alveg efasemdum um einkaframkvæmd og ég og minn flokkur höfum í gegnum tíðina varað við einkaframkvæmd almennt. Við höfum haft dæmi um það og bent á að það er dýrara, og var kannski sérstaklega dýrara á sínum tíma, að láta einkaaðila fjármagna hluti fyrir ríkið vegna þess að einkaaðilar höfðu ekki jafngott lánshæfismat og nutu ekki jafngóðra kjara á lánamörkuðum. Framkvæmdin varð einfaldlega dýrari þess vegna, en í hruninu snerist þetta algerlega við.

Ríkissjóður Íslands, með 260 milljarða kr. mínusi á árinu 2009, var ekki burðugur og hafði ekki mjög hátt lánshæfismat og gat ekki endilega fengið lán til að fjármagna minni framkvæmdir en þá sem við erum að ræða. Það spilaði auðvitað inn í, plús það að lífeyrissjóðirnir höfðu áhuga á því að koma að verkefninu af mörgum ástæðum. Lífeyrissjóðirnir höfðu á þessum tíma, og hafa kannski enn, burði til að fjármagna verkefni sem þetta, sem ríkissjóður gat ekki á þeim tíma. Það voru auðvitað efasemdir uppi um þetta en nú virðast önnur atriði komin upp í umræðuna, m.a. efasemdir varðandi þetta alútboð sem átti að vera forsendan fyrir leiguleiðinni. Ég hlakka bara til að við skoðum þetta í sameiningu og öll með góðum hug þegar frumvarpið kemur í janúar.