fjárlög 2013.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Hún fjallaði um byggingu Landspítalans mestan part. Ég segi það fullum fetum að auðvitað eru forsendur fyrir þessari sameiginlegu ákvörðun brostnar þegar búið er að taka ákvörðun um að fara ekki þá leið sem samstaða náðist um. Það er búið að taka ákvörðun um að það verði ekki farið með allt verkið í einkaframkvæmd. Sú ákvörðun hefur verið tekin af meiri hluta Alþingis og ríkisstjórninni og birtist í þeim áformum sem hérna eru uppi. Stjórnarandstaðan hefur ekkert komið að þeirri umræðu og veit þar af leiðandi ekki almennilega á hvaða forsendum slík ákvörðun og slík stefnubreyting birtist.
Það var undirstrikað að forsendan fyrir þessu verki var sú að fjárhagsstaða ríkissjóðs á árunum 2010, 2011, 2012, 2013 var þannig að menn ætluðu frekar að fara með þetta út í þennan farveg og láta hagræðingu í rekstrinum greiða niður kostnaðinn. Við erum að horfa upp á það hér að fjárlagafrumvarpið eins og það liggur fyrir er ekki réttum megin við núllið. Maður spyr sig því hvað verður í afgang á næstu árum til að greiða niður skuldir. Ef menn ætla að fara inn í opinbera hlutann með stærsta hluta þessa verks þá stofnum við til nýrra skuldbindinga. Það er fjöldinn allur af þáttum sem þarf athugunar við en það sem við höfum gert athugasemdir við er að stjórnarmeirihlutinn er búinn að taka stefnu í aðra átt heldur en ætlunin var og samstaða var um, í lögum nr. 64/2010 sem samþykkt voru 11. júní á Alþingi. Það er engum blöðum um það að fletta að aðrar línur liggja fyrir í þessum efnum þótt ekki sé búið að taka ákvörðun um tilboð eða annað. En það er búið að brjóta verkið upp í tvennt.