fjárlög 2013.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir efnislega og ágæta umræðu sem verið hefur um fjárlögin í þessari 3. umr. Það er mjög mikilvægt að þingheimur fari yfir málin eins og hér hefur verið gert og kannski ekki í allan tíma verið sá bragur á umræðunni hér í þinginu í vetur eins og við þekkjum, en þessi umræða hér í 3. umr. hefur um margt verið ágæt.
Það vekur hins vegar ákveðna undrun þegar maður kemur að umræðu og vinnu við fjárlagagerð sem meðlimur í fjárlaganefnd að upplifa hvernig verklag og vinnubrögð eru í kringum þessi mál, hafandi verið í sveitarstjórn í nærri tvo áratugi. Vikið var að þessari umræðu hér í ræðum, meðal annars hv. þm. Ásbjörns Óttarssonar, og fleiri hafa komið inn á þetta í umræðunni. Ég get á margan hátt tekið undir þá gagnrýni hvernig þetta verk og vinnulag hefur verið hér í þinginu. Ég veit að það er ekkert í fyrsta skipti nú langt í frá, heldur er þetta ákveðið ferli sem verið hefur með þessum hætti, að meiri hluti og minni hluti mætast eins og tveir pólar og tvær andstæður í fjárlaganefnd, en efnislega umræðan og yfirferð á lykilþáttum sem snúa að ákvarðanatöku og stefnumörkun í fjárlagagerðinni á sér alls ekki þann stað og þann vettvang sem þyrfti að vera í fjárlaganefnd, heldur birtist frekar í hinni pólitísku umræðu hér í þingsal.
Ekki það að það sé ekki ágætt út af fyrir sig, en ég hefði getað ímyndað mér og séð það fyrir mér að fjárlaganefnd væri mun virkari og opnari í umræðu sinni í undirbúningi og meðferð málsins á fyrri stigum áður en það kemur hér inn til afgreiðslu, meðal annars til að leita eftir því hvort hægt sé að ná breiðari sátt og samkomulagi um þær leiðir, um þau markmið og um þá stefnu sem menn hafa hverju sinni.
Nú er það þannig að það þarf tvo til og stundum jafnvel fleiri til þess að geta náð upp slíkri samvinnu og samstarfi þannig að það skili einhverjum árangri. Það hefur því miður verið þannig að við höfum verið á átakaþingi í átakastjórnmálum í eftirmála hrunsins. Ég vil fullyrða að það hefur gert okkur um margt mun erfiðara fyrir að ná þeim árangri sem við annars vildum hafa séð vegna þess að okkur hefur ekki auðnast að ná jafnbreiðri sátt og samkomulagi um vinnubrögð og stefnu í jafnmikilvægum málum og í ríkisfjármálum. Það er miður.
Hitt er annað að við verðum að horfa til þess að þrátt fyrir að okkur hafi mistekist í þeim efnum hefur ríkur árangur náðst í að snúa ofan af þeim stóra vanda sem við höfum verið að glíma við eftir hrunið. Þessi fjárlög fyrir árið 2013 endurspegla þann veruleika, ekki er hægt að horfa fram hjá því. Það hefur komið skýrt fram í umræðunni hér í dag og í gær við 3. umr. og ekki síður við 2. umr. þar sem liggur fyrir hver eru meginmarkmið og meginniðurstaða í fjárlagafrumvarpi. Það er líka um margt einstakt að eftir þá umræðu sem við höfum farið í gegnum og þær miklu hreyfingar til og frá, bæði í tekjuhlið og útgjaldahlið, erum við nánast á sama punkti með meginniðurstöðu fjárlaga eins og við munum væntanlega afgreiða þau frá Alþingi á morgun. Það skiptir gríðarlega miklu máli að geta staðið við þau markmið sem fram eru sett í þessum efnum.
Það er alveg ljóst að niðurskurðinum og niðurskurðartímabilinu er lokið og viðspyrnan er hafin. Við erum að fara fram með að bæta hag barnafjölskyldna, skapa nýjar áherslur í atvinnumálum og stöðva skuldasöfnun ríkissjóðs. Það eru þeir þrír lykilþættir sem blasa við.
Hér hafa menn tekist á um það í umræðunni hvort þetta sé sú leið sem eigi að fara. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks hafa lagt áherslu á að nær væri að bregðast við þeim stóra skuldavanda sem blasir við, upp á 2.000 millj. kr., og byrja að greiða þær skuldir niður og setja þau mál í forgang. Vissulega eru full rök fyrir slíkri umræðu, en auðvitað verður að horfa til þess að eftir þann þunga og erfiða niðurskurð sem við höfum gengið í gegnum á umliðnum þremur til fjórum árum í heilbrigðiskerfi, í menntakerfi, í löggæslu, á nánast öllum þjónustusviðum samfélagsins, verður að forgangsraða í stöðunni þegar við höfum loksins svigrúm til að geta látið eitthvað af hendi rakna inn í samfélagsþjónustuna. Það er auðvitað um þetta sem hin pólitísku átök standa.
Hvernig eigum við að stíga fram með fjárlög í þessum efnum? Eigum við að leggja inn í velferðina og byggja upp aftur það sem skorið var niður? Eigum við að taka það í einhverjum áföngum samhliða því að við styrkjum grunninn fyrir atvinnulífið og endurreisn samfélagsins til að geta skapað aftur auknar tekjur? Til að þurfa ekki eingöngu að una við hallalaus fjárlög heldur til að ná fram tekjuafgangi til að geta lagt af fullum krafti og með skipulegum hætti inn í niðurgreiðslur þeirra skulda sem við stöndum frammi fyrir í þjóðarbúinu? Það eru auðvitað þessi lykilatriði sem við erum að fást við, ólíkar leiðir að sama marki.
Ég sakna þess, með vísan til þess sem ég sagði hér í upphafi míns máls, að þessi pólitíska umræða á sér ekki stað í fjárlagaundirbúningnum og fjárlagagerðinni. Þegar við erum að fara yfir þær áherslur sem fjárlaganefndin sjálf vill leggja á fjárlagafrumvarpið og mér finnst einnig, talandi af þeirri reynslu, sem auðvitað er skammvinn, sem ég hef haft af þessum málum hvað varðar ríkisfjármálin, að fjárlaganefndin sem slík komi allt of lítið og allt of seint að þeirri stefnumörkun sem lögð er með fjárlagafrumvarp hverju sinni. Hún kemur inn í málið á lokastigi í lokasprettinn þegar fjármálaráðuneyti og stjórnvöld hverju sinni eru í raun og veru búin að leggja hinar stóru línur.
Í annan stað er það auðvitað einkennilegt varðandi ríkisfjármál að hér erum við sífellt að vinna í einhvers konar eins árs fjárhagsáætlunum á sama tíma og búið er að leggja mjög skýrar fjármálareglur fyrir sveitarfélögin í landinu sem hafa nú um langt árabil verið að leggja fram sínar þriggja ára áætlanir, eru farin að vinna fimm ára áætlanir og þurfa einnig nú með nýjasta móti að setja fram 10 ára markmiðssetningu í fjárlagagerð sinni til að geta staðið þau markmið sem hafa verið sett um skuldahlutfall og önnur lykilatriði í fjárlagagerð.
Það virðist vera eins og ríkissjóður og ríkisfjármálin séu enn þá eitthvert eyland í þessari umræðu og þurfi ekki að koma inn í þennan fasa á sama hátt og stjórnvöld hafa lagt áherslu á það að setja sveitarfélögunum reglur í þessum efnum.
Ég veit að verið er að leggja fram breyttar tillögur og endurskoðun á fjármálareglum ríkisins. Það er mjög mikilvægt að fá þau mál til umræðu og yfirferðar sem fyrst og horfa til þess, þegar við erum að sigla þjóðarskútunni út úr þeim mikla ólgusjó sem við höfum staðið í undanfarin ár, erum farin að komast inn á lygnari sæ, að menn geti farið að horfa aðeins til víðari átta, og leggja fram skýra stefnumörkun í því hvert erum við að fara, hvernig við ætlum að standa að því að styrkja og efla velferðarkerfið á ný og hvernig við ætlum að mæta þeim skuldbindingum sem við stöndum frammi fyrir varðandi skuldir ríkissjóðs og aðra þætti sem vissulega þarf að taka á.
Ég hef heyrt í umræðunni haldið fram hér af þingmönnum Sjálfstæðisflokks og stjórnarandstöðu að þessi fjárlög séu marklaus vegna þess að inn í þau vanti stóra útgjaldaliði sem ekki sé gert ráð fyrir. Það má vel vera að menn geti tínt upp slíka hluti hvort sem menn horfa á Íbúðalánasjóð og það ástand sem þar ríkir og hvernig menn ætla að gera upp þann þátt mála og geti með einhverjum rökum fært sönnur fyrir því að gjaldfæra ætti einhverjar stórar fjárhæðir í væntanlegu tapi sjóðsins. Við getum horft á að lífeyrissjóðakerfi ríkisins og hvaða skuldbindingar liggja þar inni og hafa legið þar inni árum og áratugum saman og þannig mætti áfram telja.
Við verðum auðvitað að horfa til allrar þessarar umræðu af sanngirni og skoða hlutina eins og þeir líta út hverju sinni. Það segir sig sjálft að við erum með ákveðna óvissuþætti sem hljóta alltaf að vera til staðar hvort sem það snýr þessa stundina að Íbúðalánasjóði eða öðrum þáttum. Það er eðlilegt að við höfum öll spil uppi á borðum í þeim efnum áður en við erum búnir að setja þar niður einhverjar skýrar línur hvernig menn ætla að fara að færa hér inn í rekstur eða efnahag ríkissjóðs færslur hvað þau mál snertir.
Það er líka sérstakt í málflutningi að á sama tíma og það er gagnrýnt harðlega að viðbótarframlög vanti inn í velferðina, inn í menntakerfið, inn í heilbrigðiskerfið, til löggæslunnar og þannig mætti áfram telja, hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokks til að mynda fellt hér við 2. umr. tekjutillögur ríkissjóðs upp á vel á annan milljarð kr. Maður hlýtur að spyrja sjálfan sig að því hvernig það eigi að ganga saman að vera með aðra höndina á rauða takkanum og fella tekjutillögurnar án þess að sýna nokkrar nýjar og í hina röndina að kalla eftir því með græna takkanum að framlögin séu aukin inn í þjónustu samfélagsins langt umfram það sem menn hafa burði til og getu miðað við þá rekstrarstöðu sem við stöndum frammi fyrir.
Það þarf auðvitað að sýna sanngirni í þessari umræðu líka. Maður spyr sjálfan sig að því hvernig á því standi að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur ekki lagt fram neinar breytingartillögur við fjárlagafrumvarpið. Því var svarað til af hv. þm. Kristjáni Þór Júlíussyni við upphaf þessarar umræðu að búið væri að leggja fram hátt í 200 slíkar tillögur á undanförnum árum, sem ekki hefðu skilað neinum árangri, og þess vegna þjónaði það engum tilgangi að leggja slíkar tillögur hér fram til viðbótar. Jú, það má vissulega setja málið fram með þeim hætti, en það hlýtur samt að vera lykilatriði og innlegg í þessa pólitísku umræðu um það hvaða leiðir við erum að fara og hvernig við viljum stilla upp rekstri okkar og velferðarþjónustu og ríkisfjármálum, að þær leiðir sem ganga upp séu sýndar og hvernig menn vilja nálgast þær.
Ríkisstjórnin hefur sett fram sín spil og lagt út hvernig hún ætlar að nálgast sín markmið. Menn geta haft sínar skoðanir á því hvort það séu þær bestu leiðir eða ekki. En ef menn hafa upp á eitthvað annað að bjóða verða menn að sýna á sín spil líka. Það má vel vera að það henti ekki í aðdraganda kosninga að sýna þau spil ef menn meta það með þeim hætti. Á sama hátt og menn tala um tillögur ríkisstjórnarinnar í uppbyggingu í framkvæmdaáætlun þeirri sem fylgir með þessu fjárlagafrumvarpi sem gæluverkefni. Ég er ekkert viðkvæmur fyrir slíkri umræðu. Þetta eru sannarlega gæluverkefni þessarar ríkisstjórnar. Hún setur þessi verk í forgang fyrir þá stefnu sem hún talar fyrir. Vel má vera að það verði seint að þau verkefni verði einhvern tímann gæluverkefni stjórnarandstöðunnar í þessu þingi eins og mál standa í dag. En þetta eru þær áherslur sem ríkisstjórnin talar fyrir í dag og leggur áherslu á að ná fram til að styrkja grundvöll fyrir efnahag og ríkisfjármálum til komandi framtíðar. Það skiptir máli að við höfum á slíkum grunni að byggja til þess að fara fram með okkar sóknarfæri, tryggja og styrkja okkar tekjuliði og okkar fjárhag.
Þessi fjárfestingaráætlun er bundin mörkuðum tekjustofnum. Það er þess vegna ákveðin forsenda fyrir því að hægt sé að fara fram með þau mál að þær tekjur skili sér í ríkissjóð. Þannig er lögð ákveðin ábyrgð fyrir því að vera ekki að fara fram með einhverja slíka hluti nema hægt sé að tryggja að fjármagn skili sér inn í þau verkefni.
Það var hér ítarleg umræða næst á undan varðandi málefni Landspítalans. Mig langar að víkja örfáum orðum að því máli vegna þess að mér finnst eins og verið sé að stilla því máli upp á þann veg að samkomulag sem var gert um þær leiðir sem menn vildu fara í uppbyggingu nýs Landspítala séu fyrir bí og að verið sé að svíkjast aftan að þeim samningum sem þar voru gerðir og breið samstaða ríkti um hér á þingi.
Málið horfir þannig við mér að breyttar aðstæður eru uppi eftir að ljóst er að undirbúningur fyrir þær framkvæmdir sem hefur verið stefnt að að fara fram með nú þegar skipulagsþátturinn liggur nokkuð skýr fyrir er með þeim hætti að aðilar á markaði, sem menn töldu að væru vísir til þess að koma að framkvæmdum, fjármagna þær og leigja aftur til hins opinbera, virðast ekki vera til staðar til að fara fram með þessar framkvæmdir. Þá stöndum við auðvitað frammi fyrir þeirri spurningu: Ætlum við að gera breytingar þar á og taka þá þætti í þessu verkefni sem greinilega liggur fyrir, að minnsta kosti að mati verkefnisstjórnar eins og staðan er í dag að gangi ekki upp að óbreyttu og finna aðrar leiðir til þess að fara fram með verkefnið, eða ætla menn að leggja verkefnið til hliðar um einhvern óákveðinn tíma? Þetta eru stórar spurningar. Það er auðvitað eðlilegt að þingið og fjárlaganefnd fari yfir þau mál. Þetta eru mál sem eru að koma upp á borð okkar núna á allra síðustu vikum. Sá texti sem fylgir í greinargerð með nefndaráliti meiri hluta útskýrir að með vísan til þess minnisblaðs sem lagt var fram í ríkisstjórn í lok síðasta mánaðar liggi fyrir að frumvarp um einhverja breytingu á þeirri stefnumörkun sem áður var sett fram muni verða lagt fram af hálfu ríkisstjórnar til yfirferðar og umfjöllunar og væntanlega afgreiðslu nú í upphafi komandi árs.
Í mínum huga liggur ljóst fyrir að engar ákvarðanir hafa verið teknar um að kúvenda eða breyta til í þessu máli, heldur að við stöndum frammi fyrir því að taka ákvörðun um það hvort þörf er á slíku horfandi til þeirrar stöðu sem uppi er í þessu máli. Ég ætla ekki að segja neitt fyrir um það á þessu stigi hvaða leið verður ofan á í þeim efnum. Það er ljóst að við munum þurfa að taka þá umræðu og þurfum að gefa okkur góðan tíma í það nú í upphafi nýs árs.
Virðulegi forseti. Ég ætlaði ekki að setja á hér langa umræðu. Þetta voru kannski nokkur lykilatriði sem ég vildi koma að í mínu máli. Ég vil endurtaka það að ég þakka fyrir þá umræðu sem hefur verið við 3. umr. Mér finnst hún hafa verið um margt góð. Hún hefur verið upplýsandi. Það hefur verið komið hér inn á ýmsa þætti. Ég ítreka það sem ég sagði áðan: Ég hefði viljað sjá og vil sjá fyrir mér breytt fyrirkomulag, breyttar vinnuaðferðir, meira samráð, meiri samvinnu og að vilji sé til þess af beggja hálfu að fjárlaganefnd komi sem virkari og öflugri aðili að undirbúningi og þeirri stefnumörkun sem lögð er upp með gerð fjárlaga hverju sinni.