141. löggjafarþing — 57. fundur,  19. des. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[18:58]
Horfa

Lúðvík Geirsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Fyrst að Landspítalanum. Ég ítreka að það er ekki að ástæðulausu sem við stöndum frammi fyrir því að þurfa að taka upp þá umræðu. Það hefur komið skýrt fram að sú leið sem menn vildu fara og hefur verið breið samstaða um, þ.e. svokölluð leiguleið, er ekki fær að mati verkefnisstjórnar. Maður spyr: Hvaða tilgangi þjónar það að fara fram með útboð í formi leiguleiðar ef við fáum engin viðbrögð og engin svör og engan áhuga? Ætlum við að eyða tímanum í að bíða eftir slíkum tilboðum eða ætlum við að fara aðrar leiðir? Nú er búið að kanna það og skoða á verktakamarkaðnum og framkvæmdamarkaðnum hér heima hvort slíkur vilji sé fyrir hendi. Það liggur fyrir, samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef fengið og aðrir sem hafa rætt þau mál, að sá áhugi er ekki fyrir hendi og sú geta ekki heldur í augnablikinu. Vonandi kemur aftur að því fyrr en síðar.

Ef við ætlum að halda verkefninu til streitu innan þess tímaramma sem við höfum horft til þar sem við erum komin með deiliskipulag og alla undirbúningsvinnu klára þá verðum við að horfa til þess hvaða leið við ætlum að fara. Ég hef skilið það svo að vilji sé til þess að fara leiguleiðina með smærri einingarnar og byrja á því dæmi. Með forvali og útboði er þetta fjögurra til sex mánaða undirbúningstími áður en þarf að taka endanlega ákvörðun. Ljóst er að það verður ekki fyrr en á nýju kjörtímabili sem hinar endanlegu ákvarðanir verða teknar um hvort farið verði af stað eða ekki.

Varðandi hinn þátt málsins fæ ég vonandi tíma til að svara því í síðara andsvari.