fjárlög 2013.
Forseti. Hv. ræðumaður, þingmaður ræddi hér og gerði að umtalsefni hvernig einstakir stjórnarliðar umgengjust fjárlögin og líkti þeim við jólasveina í útdeilingu gjafa. Ef við höldum okkur við samlíkingar má minna á að í tengslum við andsvör hv. þingmanna hér áðan var notuð sú samlíking að notendur á orkuveitusvæði Orkuveitu Reykjavíkur hefðu fengið Perlu í skóinn í nótt meðan íbúar (Gripið fram í.) á Snæfellsnesi, á Grundarfirði og í Snæfellsbæ, fengu kartöflu sem er fólgin í því að þar er dregið úr þjónustu.
Ef við höldum líkingunum áfram getum við alveg eins sagt sem svo að það hafi ýmsir jólasveinar gengið hér um héruð fyrir síðustu kosningar og lofað kjósendum því að sækja aldrei um aðild að Evrópusambandinu. Ég sé ekki hvar það stendur í dag. Eins eru það þeir þættir sem er verið að deila út og hv. þingmaður gerði ágætlega grein fyrir því í ræðu sinni hvað væru góðir bitar, ef svo mætti segja, í þessu fjárlagafrumvarpi og flestir eru svona í grunninn sammála um það séu góð mál. Það er engu að síður niðurstaðan í fjárlagatillögunni eins og hún liggur fyrir að við rekum ríkissjóð með halla. Í rauninni eru allir sem hafa tjáð sig um málið við þessa umræðu sammála um að þar liggur mesti vandinn okkar.
Einmitt af því tilefni vil ég inna hv. þingmann eftir því hvort við getum ekki verið sammála um að hinn eini sanni mælikvarði á verkefnið sem við glímum við séu hreinar skuldir ríkissjóðs. Getum við ekki verið sammála um að það sé í rauninni sá mælikvarði sem við verðum að nýta til að meta árangurinn af því sem við leggjum í í tengslum við fjárlagagerðina með það að markmiði að ná niður hallanum og komast í það verkefni að byggja hérna upp (Forseti hringir.) … aðgerð.