141. löggjafarþing — 57. fundur,  19. des. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[21:38]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F):

Virðulegur forseti. Ég ætla að gera stuttlega grein fyrir breytingartillögu sem ég og þingmenn Framsóknarflokksins leggjum fram við fjárlagafrumvarpið og varðar stöðu þjóðkirkjunnar, þ.e. sóknargjöld. Við leggjum reyndar ekki fram tillögur um aukin útgjöld þó að víða skorti mjög á að gert sé ráð fyrir nægum framlögum til hinna ýmsu undirstöðustofnana samfélagsins, en reynslan sýnir því miður að tillögur stjórnarandstöðunnar á undanförnum árum um úrbætur, sama hversu augljós þörfin hefur verið, hafa ekki hlotið náð fyrir augum stjórnarliða og því höfum við einbeitt okkur að því við umræðu um þessi fjárlög að draga sem mest úr skaðanum í umræðum í þinginu og í fjárlaganefnd.

Staða kirkjunnar og sóknargjöldin eru sér á báti vegna þess að um þau gilda sérstakir samningar milli ríkis og kirkju. Sóknargjöld eru raunar félagsgjöld sem ríkið tekur að sér að innheimta fyrir kirkjuna. Það er því ekki hægt að tala beinlínis um að þau séu framlög frá ríki til kirkju, heldur félagsgjöld sem ríkið hefur tekið að sér að innheimta fyrir kirkjuna. Áður sáu safnaðarnefndir yfirleitt um að innheimta þessi gjöld. Raunar sáu nokkrar sóknarnefndir um þetta sjálfar allt til ársins 1987, en með tilkomu staðgreiðslu skatta árið 1987 samdi ríkið við kirkjuna um að það tæki að sér þessa innheimtu.

Fjármálum kirkjunnar tengjast líka hinir ýmsu samningar sem gerðir hafa verið í gegnum tíðina og skiptir þar kannski mestu máli að kirkjan hefur látið umtalsverðar eignir af hendi til ríkisins, ekki hvað síst kirkjujarðir, gegn því að ríkið greiði fyrir með því að fjármagna kirkjuna að einhverju leyti.

Sóknargjöldin eru, eins og ég segi, algjörlega sér á parti. Þau eru félagsgjöld sem ríkið innheimtir fyrir kirkjuna og hefur til þessa skilað áfram til kirkjunnar eins og vera ber. En eftir efnahagshrunið léði kirkjan máls á því að dregið yrði úr þessum sóknargjöldum, eða réttara sagt að ríkið fengi að halda eftir töluverðum hluta sóknargjaldanna. Það má raunar segja að kirkjan hafi undanfarin ár verið að styrkja ríkið með því að leyfa því að halda eftir hluta þeirra félagsgjalda sem ríkið hefur safnað fyrir kirkjuna. Þessir styrkir kirkjunnar til ríkisins nema nú hátt í 2 milljarða kr. Það hefur ekki verið auðvelt fyrir þjóðkirkjuna að spara svo mikið til að geta veitt ríkinu tæplega 2 milljarða kr. framlag. Það var þegar orðið mjög erfitt í fyrra og stóð rekstri kirkjunnar það mikið fyrir þrifum að hún átti erfitt með að sinna ýmsum undirstöðuhlutverkum sínum. Á þessu ári höfum við séð áhrifin í ýmsum myndum. Kirkjan hefur ekki verið fær um að ráðast í nauðsynlegt viðhald af kirkjubyggingum og hefur þurft að reiða sig á gjafir safnaðarins og jafnvel neyðst til þess að segja upp starfsfólki og leggja niður kóra, meðal annars barnakóra kirkjunnar.

Þegar staðan fór að verða mönnum ljós, hún var mönnum ekki alveg orðin ljós á síðasta ári en við vinnslu fjárlaga í fyrra fór hún að renna upp fyrir mönnum og jafnframt að hún væri afleiðing af því að kirkjan hefði skorið umtalsvert meira niður en aðrar stofnanir til að geta leyft ríkinu að halda eftir svo stórum hluta sóknargjaldanna, þá var gert samkomulag um að ef kirkjan féllist á að styrkja ríkið áfram á því ári sem nú er að ljúka, eins og hún hafði fallist á að gera, yrði farið í úttekt á fjárþörf kirkjunnar á yfirstandandi ári. Innanríkisráðuneytið mundi sjá um það. Fjárlaganefnd bókaði við vinnslu fjárlaga í fyrra eftirfarandi klausu, með leyfi forseta:

„Þjóðkirkjan hefur vakið athygli fjárlaganefndar á misræmi við útfærslu á niðurskurði framlaga undanfarinna ára. Þannig hafa framlög til sóknargjalda lækkað mun meira en sem nemur hagræðingarkröfu á almennan rekstur ríkisins. Innanríkisráðherra hefur skipað nefnd sem ætlað er að leggja mat á afleiðingar niðurskurðarins. Í kjölfar þess að nefndarálit verður kynnt ráðherra og Alþingi mun ráðuneytið bregðast við ábendingum með tillögum til Alþingis um breytingar á fjárframlögum við undirbúning fjárlagafrumvarps fyrir árið 2013.“ — Þ.e. við undirbúning þess fjárlagafrumvarps sem hér er til umræðu.

Nefnd innanríkisráðuneytisins komst að þeirri niðurstöðu að fjárskortur kirkjunnar væri orðinn mjög alvarlegur og mikið áhyggjuefni og vísaði meðal annars til úttektar Ríkisendurskoðunar. Í skýrslunni segir, með leyfi forseta:

„Dregin var sú ályktun af gögnum Ríkisendurskoðunar og vitnisburði að með sama áframhaldi mundi þjóðkirkjunni á allra næstu árum verða nauðugur sá kostur að leggja niður mikilvægan hluta af kjarnastarfsemi sinni til að forða því að kerfið í heild kæmist í þrot.“

Farið var yfir hversu miklu meira af félagsgjöldum kirkjunnar hún þyrfti á að halda — athugið, hér er um að ræða félagsgjöld sem kirkjan á nú þegar — til að geta staðið undir eðlilegri starfsemi. Það mátti lesa út úr skýrslunni að mjög varfærið mat höfunda væri að sóknartekjur þjóðkirkjusafnaða yrðu á næsta ári hækkaðar í 852 kr. á mánuði úr 728 kr., þ.e. fyrir árið 2013.

Svo sjáum við í fjárlögunum nú þegar umræðu um þau er að ljúka að ekki virðist standa til af hálfu ríkisstjórnarinnar að standa við fyrirheitin frá því í fyrra, fyrirheit sem voru bókuð sérstaklega í fjárlaganefnd og undirbúin með vinnu sérstakrar nefndar á vegum innanríkisráðuneytisins sem skilaði svo niðurstöðu sem átti samkvæmt ákvörðuninni í fyrra að liggja til grundvallar hækkun á framlögum til kirkjunnar núna.

Enn minni ég á að hér er um að ræða félagsgjöld kirkjunnar, peninga sem tilheyra í rauninni kirkjunni og það hversu mikið kirkjan eigi að halda eftir af þeim peningum sem hún á. Þetta virðist einfaldlega hafa gleymst nema einhverjir hafi hreinlega einsett sér að standa ekki við þetta samkomulag. Við skulum segja að það hafi gleymst að virða samkomulagið frá því í fyrra og því leggjum við framsóknarmenn fram breytingartillögu þess efnis að bætt verði við sóknargjöld kirkjunnar sem nemur lágmarksþörf samkvæmt þeirri greiningu sem innanríkisráðuneytið vann og átti að liggja til grundvallar fjárlögunum. Við förum ekki fram á meira en að staðið verði við lágmarksþörfina sem búið var að lofa að mæta og leggjum því til að sóknargjöld fari úr 1.680 millj. kr. í 1.966 millj. kr. Menn hljóta að standa við það, (Forseti hringir.) það er óhugsandi að þeir ætli að svíkja enn einn samninginn.