ýsugengd við Norðvesturland.
Frú forseti. Öllum mátti ljóst vera að það gæti skapað töluverð vandamál varðandi meðafla á ýsu í öðrum veiðum þegar kvótinn er minnkaður ár eftir ár eins og við höfum orðið að gera á grundvelli ráðgjafar frá Hafrannsóknastofnun. Vek ég þó athygli á því að veiðiheimildir yfirstandandi árs eru talsvert umfram ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Farið var um það bil hálfa leið niður að henni frá veiðinni á síðasta ári. Hafrannsóknastofnun hefur ítrekað á undanförnum mánuðum og missirum verið beðin um að endurmeta stöðuna varðandi ýsuna, hvort einhverjar forsendur séu til að auka veiðiheimildir umfram það sem hún hefur áður lagt til en niðurstaðan hefur ætíð orðið sú sama.
Vandinn er sá að þrátt fyrir að umtalsvert sé af fullorðinni ýsu er nýliðunin afar slök ár eftir ár og þá geta að sjálfsögðu komið upp þær aðstæður tímabundið að talsverð veiði sé á eldri fiski, en þeir árgangar sem eiga að bætast inn í veiðina á næstu árum eru hins vegar hörmulega lélegir þannig að það getur skýrt tímabundið þetta ástand sem og önnur dreifing ýsunnar á miðunum við landið. Það er mikil ýsugengd, mikið af fullorðinni ýsu fyrir vestan og norðan en kannski minna af henni annars staðar. Ekki hafa verið faglegar eða vísindalegar forsendur til þess að breyta ákvörðunum um aflaheimildir í ýsu.
Varðandi það hvort eitthvað sé hægt að gera við þessu ástandi höfum við skoðað alla möguleika í þeim efnum í ráðuneytinu og erum m.a. að velta fyrir okkur hvort hugsanlega væri réttlætanlegt að rýmka reglur um meðafla tímabundið, því að ég hef auðvitað áhyggjur af hinu sama og hv. fyrirspyrjandi en vil þó ekki taka undir þau stóru orð að það liggi fyrir og sé sannað að um stórkostlegt brottkast sé að ræða. Ég trúi því ekki fyrr en það er sannað að menn reyni ekki eins og þeir lífsins mögulega geta að forðast slíkt, en að sjálfsögðu er alveg ljóst að staðan er erfið fyrir ýmsa hvað þetta varðar og lítið um ýsu á leigumarkaði o.s.frv. (Forseti hringir.) En til að svara þá aftur spurningu hv. þingmanns; það helsta sem verið hefur til skoðunar er spurningin um hvort réttlætanlegt væri tímabundið að rýmka reglur um ýsu sem meðafla.