141. löggjafarþing — 58. fundur,  20. des. 2012.

fjárlög 2013.

1. mál
[13:41]
Horfa

Jón Bjarnason (Vg):

Frú forseti. Gert er ráð fyrir rúmlega 800 millj. kr. í styrk frá Evrópusambandinu til að aðlaga íslenskt samfélag inngöngu í sambandið. Ég bendi á að þetta er styrkurinn á fjárlög næsta árs og síðan eru fyrirheit og samningar um áframhaldandi styrki frá Evrópusambandinu til næstu ára, til næsta Alþingis. Sú Evrópusambandsumsókn sem fór því miður af stað fyrir rúmum þremur árum síðan átti ekki að taka meira en tvö ár, það var sagt við okkur sem vorum á móti. Hér er gert ráð fyrir því að þiggja áframhaldandi fjármagn frá Evrópusambandinu til þess að aðlaga íslenskt samfélag inngöngu.

Ég segi svo margfalt nei að þau mættu vera mörg í ræðustólnum og öllsömul færast til bókar.