141. löggjafarþing — 59. fundur, 20. des. 2012.
upplýsingalög.
215. mál
Ég þakka innilega fyrir þessi svör. Það er eitt sem mig langaði að spyrja þingmanninn Lúðvík Geirsson að, það er: Telur þingmaðurinn að greinar er lúta að upplýsingafrelsi í tillögum að nýrri stjórnarskrá renni styrkum stoðum undir það að við búum ávallt við besta mögulega upplýsingafrelsi sem völ er á hverju sinni?