141. löggjafarþing — 59. fundur,  20. des. 2012.

greiðsla kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.

456. mál
[18:10]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Helgi Hjörvar) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tek undir það hjá hv. þingmanni að auðvitað er mikilvægt að hafa eftirlit með slitastjórnunum eins og öðrum þeim aðilum sem eru að sýsla með verulega fjármuni á markaðnum.

Hvað varðar viðskipti slitastjórnarmanna við eigin fyrirtæki þá get ég sagt að ég hef aldrei talið fara vel á því að umfangsmikil slík viðskipti eigi sér stað. Í þinginu hefur tekist að gera nokkrar úrbætur á því umhverfi. Einkanlega var það þegar við höfðum forgöngu um að leggja niður skilanefndirnar sem áður voru, því að það fyrirkomulag sem var með skilanefndirnar var afar óheppilegt því að Fjármálaeftirlitið hafði sett þær til starfa og erfitt um vik að láta það síðan hafa eftirlit með þeim aðilum sem eftirlitið hafði sjálft sett til verka. Það fyrirkomulag sem tók síðan við voru slitastjórnirnar sem eru nokkurs konar skiptastjórar í þrotabúum. Það að dómstólar skipi slitastjórnirnar og hægt sé að leita til dómstóla með umkvartanir ef menn telja tilefni til held ég að hafi verið framför í því hvernig þessum málum er skipað. En ég tek eindregið undir með hv. þingmanni að efla má það eftirlit til muna.