sala á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum.
Virðulegi forseti. Ég las þetta frumvarp eins og hv. þm. Eygló Harðardóttir og ég vil lesa, með leyfi forseta, úr 2. gr.:
„Að liðnum fresti skv. 1. mgr. skal ráðherra taka ákvörðun um hvort sölumeðferð eignarhlutarins verði hafin í samræmi við efni greinargerðarinnar. Ráðherra getur í ákvörðun sinni gert breytingar á einstökum þáttum í fyrirhugaðri sölumeðferð, m.a. að teknu tilliti til athugasemda fjárlaganefndar eða efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis við greinargerðina.“
Ég get ekki séð annað, virðulegi forseti, en að ráðherrann hafi algjört vald á því hvernig hann fari með þessi mál. Bankasýslan á að annast sölumeðferðina, en við þekkjum það nú að þó að standi í lögum að Bankasýslan eigi að gera eitthvað er ekki þar með sagt að hún geri það. Jafnvel þótt það væri er Alþingi að veita ráðherra algjört ákvörðunarvald í þessu. Ég held að hv. þm. Björn Valur Gíslason þurfi að fara að kynna sér þetta aðeins betur því ég get ekki séð annað en að hv. þm. Eygló Harðardóttir hafi haft hárrétt fyrir sér.
Ég vildi spyrja hv. þingmann að nokkrum hlutum. Í fyrsta lagi: Á hv. efnahags- og viðskiptanefnd ekki að fara yfir þetta mál áður en það er klárað? Nú erum við búin að ræða þessa hluti. Hv. þm. Lilja Mósesdóttir fór yfir þætti sem menn hafa áhyggjur af sem tengjast snjóhengjunni og það hefur komið fram málefnaleg gagnrýni á að ef þeir klára nauðasamninga muni þessir sjóðir eignast þessa banka og þeir muni taka ákveðnar eignir út. Þeir hafa alla vega möguleika til þess og þeir hafa ekki áhuga á því að eignast þessa banka eða eiga þá í lengri tíma. Þetta er stóra málið. Það hefur líka komið fram að ástæðan fyrir því er að ekki er hægt að taka arð út úr bönkunum með hluthafasamkomulagi sem ríkið er aðili að, gegnum eignarhlut þess. En ef það selur eignarhlutinn er það ekki lengur aðili að þessu hluthafasamkomulagi og getur ekki komið að því.
Ég vildi þess vegna spyrja tveggja spurninga. Á hv. efnahags- og viðskiptanefnd ekki að koma að þessu áður en þetta mál er klárað? Svo hitt: Telur hv. þingmaður að þetta sé góður tími til að ná (Forseti hringir.) góðu verði fyrir banka?