sala á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður er augljóslega að misskilja málið þegar hann segir að þegar búið verður að samþykkja þetta frumvarp og það orðið að lögum getum við farið að ganga frá því hvort eigi að selja.
Hér segir í 1. gr.:
„Ráðherra er heimilt að selja að öllu leyti eða að hluta eftirtalda eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum …“
Svo er það tilgreint.
Ef við samþykkjum þetta frumvarp er honum því heimilt að gera það, þannig að það liggur í hlutarins eðli, það er alveg skýrt í þessum lögum.
Ég ætlaði að spyrja að tvennu. Var beðið um álit hv. efnahags- og viðskiptanefndar?
Síðan er hitt, ég átta mig ekki alveg á því — því við erum hér að veita heimild. Um leið og þessi lög eru samþykkt getur ráðherra bara selt þetta. Er fjárlaganefndin þá ekki búin að fara yfir hvort hún telji að þetta sé rétti tíminn til að selja? Upp á upphæðirnar, því hv. þingmaður er væntanlega að mælast til þess að við samþykkjum þetta frumvarp? Þá hlýtur hann að telja að það sé hægt að fá (Forseti hringir.) gott verð, vona ég.