141. löggjafarþing — 59. fundur,  20. des. 2012.

sala á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum.

151. mál
[20:09]
Horfa

Lilja Mósesdóttir (U) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það sem við vitum í dag um eignarhaldið á kröfum í þrotabú gömlu bankanna er auðvitað miklu meira en við vissum árið 2010. Auk þess höfðum við á þeim tíma ekki yfirlit yfir stærð snjóhengjunnar. Það er allt í lagi að skipta um skoðun eða móta sér aðra skoðun þegar fyrir liggja upplýsingar sem krefjast þess. Ég tel að mikil mistök hafi verið gerð þegar var samið við kröfuhafa gömlu bankanna um eignarhald á nýju bönkunum. Reyndar var það ólöglegt, það þurfti að stofna sérstakt eignarhald til að skilja á milli nýju bankanna og eigenda þeirra, eða þrotabúanna sjálfra. Við erum að súpa seyðið af röngum ákvörðunum sem voru teknar þegar nýju bankarnir voru endurreistir. En það er aldrei of seint að grípa inn í. Við höfum núna tækifæri til þess. Við eigum ekki að halda áfram á sömu braut og láta af hendi hlut ríkisins í alla vega tveimur bönkum, heldur miklu frekar velta því fyrir okkur hvernig við getum komið áhættufjárfestum út úr bönkunum. Ég efast stórlega um að þeir eigendur sem eru núna að Arion banka og Íslandsbanka séu hæfir. Það væri fróðlegt að vita hvað ESA eða öðrum alþjóðastofnunum (Forseti hringir.) á fjármálamarkaði þætti um það eignarhald.