141. löggjafarþing — 59. fundur,  20. des. 2012.

sala á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum.

151. mál
[20:11]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Alveg eins og hv. þingmaður kom inn á lá fyrir að Fjármálaeftirlitið mat kröfuhafana og þrotabúin ekki sem óhæfa eigendur, þess vegna var farin þessi leið, m.a. eins og með meirihlutaeigenda Arion banka. Þá var stofnað félag sem heitir Kaupskil sem er síðan í eigu Kaupþings banka.

Spurning mín til hv. þingmanns snýr að því hvort hv. þingmaður telur betra að hafa — ég er jafnóánægð með þetta frumvarp og hv. þingmaður, stöðuna eins og hún er núna þar sem fyrrum fjármálaráðherra og núverandi hæstv. atvinnuvegaráðherra sýndi okkur svo skýrt hvað hann gat gert í núverandi lagaumhverfi. Það þurfti ábendingar frá ríkisendurskoðanda til að komið væri með lagafrumvarp hingað inn þar sem ráðherrann fékk heimild fyrir því að staðfesta eða selja þennan eignarhlut ríkisins. Við bíðum enn þá eftir því að tillaga um rannsókn á þessari síðari einkavæðingu verði afgreidd hér frá þinginu. Ég spyr hv. þingmann hvort þetta frumvarp mundi taka á því að einhverju leyti. Því ég get ekki séð betur af þeim gögnum sem hér liggja frammi en að við séum fyrst og fremst að tala um að selja eignarhlut í Landsbankanum og síðan stofnfjárhluti í sparisjóðunum, því það eru þegar kaupréttarákvæði gagnvart núverandi eigendum bankanna á þessum minni hluta í Arion banka og Íslandsbanka.

Þá kemur aftur að áliti ESA þar sem er tekið mjög skýrt fram að þeir telja að ekki sé hægt að selja stofnfjárhluti sparisjóðanna inn í stóru bankana meðan ríkið (Forseti hringir.) er þar inni. Hvort áhyggjur snúist fyrst og fremst að sölunni á stofnfjárhlutunum í sparisjóðunum, að hrægammasjóðurinn (Forseti hringir.) fari þar inn.