141. löggjafarþing — 59. fundur,  20. des. 2012.

sala á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum.

151. mál
[21:05]
Horfa

Skúli Helgason (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Lilju Mósesdóttur fyrir þessa fyrirspurn. Ég lagði höfuðáherslu á það í máli mínu að það mikilvægasta við þetta frumvarp væri að það fjallaði einmitt ekki um sölu á stærsta eignarhlut ríkisins á fjármálamarkaðnum, sem er 70% stóri hluturinn í Landsbanka Íslands. Þarna er fest í lög að ekki standi til að selja stóra hlutinn í Landsbankanum þannig að frumvarpið fjallar eingöngu um heimild til að selja þessa litlu hluti í Íslandsbanka, Arion banka og síðan allt að 11% hlut í Landsbankanum. Þetta skiptir mjög miklu máli upp á umræðuna um þetta mál.

Hv. þingmaður spyr sömuleiðis um tímasetninguna. Ég er sammála því, ég held að þetta sé ekki rétti tíminn til að selja eignarhlutina í bönkunum. En það má velta fyrir sér: Erum við í betri stöðu með því að gera ekki neitt, hafa þetta eins og það er þannig að það sé engin lagaumgjörð um þessa sölu, eða erum við í betri málum núna í lok kjörtímabilsins að festa þó í gadda að ekki standi til að selja lungann af eignarhlut ríkisins í Landsbankanum? Ef til kemur að menn vilji losa um þessa litlu hluti þá verður tiltekin lagaumgjörð um þá. Ég er tilbúinn að styðja þá vegferð með þeim breytingum sem ég fór í gegnum í ræðu minni hér.